Innlent

Hjúkrunarfræðingurinn í dómsal: „Ég er búin að vera í helvíti síðustu þrjú ár“

Birgir Olgeirsson, Snærós Sindradóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
Hjúkrunarfræðingurinn kemur í dómsal í dag.
Hjúkrunarfræðingurinn kemur í dómsal í dag. vísir/vilhelm

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn hjúkrunarfræðingi sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Í morgun bar hjúkrunarfræðingurinn vitni og lýsti því sem gerðist þegar maður dó óvænt á Landspítalanum í október árið 2012. Konan neitar sök í málinu.



Fram kom í máli hennar að umrædd vakt var önnur vaktin hennar í röð og var um kvöldvakt að ræða. Hún var á flakki á milli deilda spítalans þar sem mikið var að gera en maðurinn var á gjörgæslu spítalans. Konan lýsti því að hún hefði ekki kannað svokallaðan vaktara (mónitor) þegar hún mætti á vaktina þar sem hún komst ekki að honum því eiginkona mannsins sat við hann.



Grunlaus fyrstu 12 tímana en fékk svo taugaáfall

Fannst hjúkrunarfræðingnum mikilvægara að leyfa konunni að sitja áfram við hlið mannsins í stað þess að reka hana úr sæti sínu og minnti á það fyrir dómi að starf heilbrigðisstarfsfólks fælist ekki bara í því að sinna sjúklingum heldur einnig aðstandendum.



Daginn eftir að maðurinn lést, eða um tólf tímum síðar, var hjúkrunarfræðingurinn kallaður á fund á spítalanum. Sagði hún að henni hefði ekki þótt það óeðlilegt þar sem venjan er að fara yfir hlutina í kjölfar óvænts dauðfalls.



„En þegar ég kem þarna þá skynja ég að það er skrýtið andrúmsloft inni á skrifstofunni. Ég er beðin um að fara yfir vaktina sem ég geri en síðan er ég spurð út í loftið í kraganum og ég bara man það ekki. Þarna byrja samt sjálfsásakanirnar og ég fæ taugaáfall þarna á staðnum,“ sagði konan fyrir dómi í dag en hún er meðal annars ákærð fyrir að hafa ekki tæmt loft úr kraga þegar hún losaði manninn úr öndunarvél. Kvaðst hún hafa verið í taugaáfalli þegar hún gaf fyrstu skýrslu hjá lögreglu.



„Það er ekki út af laununum sem ég er hjúkrunarfræðingur“

Aðspurð um verklagsreglur á spítalanum við vaktaskipti sagði hjúkrunarfræðingurinn að alltaf væri farið yfir ákveðinn lista þegar mætt væri á vaktina og hún hefði gert það í þessu tilfelli.



Það tók greinilega mikið á konuna að bera vitni fyrir dómi. Hún brast í grát og lýsti þeim áhrifum sem málið hefði haft á hana og hennar líf.



„Ég er búin að vera í helvíti síðustu þrjú ár. Hjónabandið mitt er ónýtt og barnið mitt sem er tólf ára hefur átt mjög erfitt. Mig hefur oft langað til að deyja,“ sagði hún og bætti við stuttu síðar:



„Ímyndaðu þér að vera góð og heiðarleg manneskja og þú lendir í því að þú telur að einhver hafi dáið af þínum völdum, út af einhverju sem þú hefur gert. Þú ferð í tölvuert áfall. Ég er hjúkrunarfræðingur af ástæðu. Það gefur mikið að vera góð við aðrar manneskjur og það er ekki út af laununum sem ég er hjúkrunarfræðingur.“



Konan er enn að vinna á dagvöktum á Landspítalanum.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×