Selja veiðileyfi á rjúpu á þjóðlendusvæðum Sveinn Arnarsson skrifar 20. október 2015 09:00 Veiðitímabilið hefst næstkomandi föstudag. Þúsundir veiðimanna munu leita rjúpna í jólamatinn á yfirstandandi tímabili og veiða jafnt á almenningum sem og í einkalöndum. vísir/vilhelm
Sveitarstjórn Húnaþings vestra meinar rjúpnaskyttum að veiða í almenningum og afréttum í almannaeigu innan marka sveitarfélagsins nema þeir greiði sveitarfélaginu 9.000 krónur í veiðileyfi. Sveitarfélagið hefur gefið út auglýsingu þess efnis á vef sveitarfélagsins. Skotveiðifélag Íslands gagnrýnir vinnubrögð sveitarfélagsins harðlega og telur sveitarfélagið ekki hafa vald til slíkrar athafnar. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra, telur bæjarfélagið í fullum rétti til að skikka veiðimenn til greiðslu veiðileyfa. „Við teljum okkur geta ráðstafað þessum veiðum eins og annarri veiði á svæðinu, til dæmis í vötnum á Arnarvatnsheiði þar sem greitt er fyrir veiðileyfi í vötnum á svæðinu. Við höfum úrskurð frá innanríkisráðuneytinu frá árinu 2006. Þangað barst kvörtun vegna svipaðrar auglýsingar og ráðuneytið gerði ekki athugasemd við þá ráðstöfun,“ segir Unnur Valborg. Í millitíðinni hafa þó úrskurðir um þjóðlendur fallið og nokkrir staðir sem sveitarfélagið rukkar veiðileyfi á hafa verið skilgreindar sem þjóðlendur í eigu allra landsmanna. Unnur Valborg telur samt sem áður hægt að rukka fyrir veiðileyfi áfram. „Það er alveg rétt að í úrskurði óbyggðanefndar er hluti þess svæðis þjóðlenda sem við rukkum fyrir veiði á. Við teljum hins vegar að á meðan ekki hefur verið klárað að skilgreina þjóðlendur og hvað felst í því hugtaki með fullnægjandi hætti getum við haldið okkur við fyrirkomulagið eins og verið hefur.Dúi Landmark, formaður Skotvís.Dúi Landmark, formaður Skotveiðifélags Íslands, telur vinnubrögð sveitarfélagsins ekki til eftirbreytni. „Það eru tvö svæði sem um ræðir hjá sveitarfélaginu. Annars vegar Víðidalstunguheiði og hins vegar Arnarvatnsheiði og Tvídægra. Ekkert kort liggur fyrir eða nákvæmlega hvernig þessu er háttað. Einnig verður að segjast að ef hægt er að rukka fyrir nytjar á afréttum og almenningum í almannaeigu eru það alvarleg tíðindi fyrir alla útivist á landinu,“ segir Dúi. Rjúpnaveiðitímabilið hefst næstkomandi föstudag. „Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að takmörkuðum gæðum eins og rjúpnaveiði,“ segir í auglýsingu sveitarfélagsins.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira