Viðskipti innlent

Bein útsending: Orkuiðnaður á nýrri öld

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helliðsheiðarvirkjun.
Helliðsheiðarvirkjun. Vísir/Valli
Landsvirkjun boðar til fundar um tækifæri í nýsköpun í orkuiðnaði fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Fundurinn fer fram á Hótel Natura og verður í beinni útsendingu hér á Vísi frá klukkan 8:30 - 10:00.

„Sérþekking á orkumálum hér á landi er nú með því mesta sem þekkist í heiminum og sífellt koma fram nýir aðilar sem byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem safnast hefur á liðnum áratugum,“ segir um fundinn á vef Landsvirkjunar.

„Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Hjá okkur starfar stór hópur sérfræðinga og saman stefnum við að því að verða í fremstu röð á sviði nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa.“

Dagskrá fundarins má sjá hér að neðan og þar fyrir neðan beina útsendingu.

8:30 – 8:35    Inngangur: Salóme Guðmundsdóttir 

8:35-8:50       Ávarp: Hörður Arnarson  

8:50-9:10       Mikilvægi heimamarkaðar í nýsköpun

Umræðustjóri: Salóme Guðmundsdóttir              

Gunnar Atli Fríðuson/Jarðböðin  - Ferðaþjónusta og heilbrigðistækni

Runólfur Geir Benediktsson - Íslandsbanki  - Sjávarútvegur

Magnús Ásmundsson  - Orkufrekur iðnaður -  Stjórnarformaður Samáls

9:10-9:30       Fortíð og framtíð nýsköpunar í orkuiðnaði

Umræðustjóri: Sigurður H. Markússon  

Albert Albertsson   - HS Orka - Jarðhiti

Hildigunnur Thorsteinsson - Orkuveita Reykjavíkur

Óli Grétar Blöndal Sveinsson  - Þróunarverkefni LV Landsvirkjun

9:30-9:50       Sprotar í orkuiðnaði

Umræðustjóri: Margrét Arnardóttir, Landsvirkjun

Sunna Ólafsdóttir Wallevik - Gerosion - Jarðvarmi

Bjarni Malmquist Jónsson - BMJ Energy - Smávirkjanir

Magnús Hauksson  – Laki- Rafsegulsvið 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×