Lesa lítið og telja að pabbi eigi að gera við bílinn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. október 2015 13:58 Rannsóknin var gerð á meðal nemenda í 5.-7. bekk. vísir/villi
Ný rannsókn sem gerð var af Rannsóknum og greiningu á meðal nemenda í 5.-7. bekk í grunnskólum landsins í febrúar síðastliðnum sýnir að meirihluti barnanna ver minna en klukkustund á dag í að lesa aðrar bækur en skólabækurnar. Ef litið er á tölfræðina eftir aldri og kyni sést að 27,7 prósent pilta í 5. bekk ver innan við hálftíma á dag í lestur, það er merkir við valmöguleikann „enga“ í rannsókninni. Þá verja 18,5 prósent stúlkna innan við hálftíma á dag í lestur. Þá verja 23,9 prósent stráka í 6. bekk minna en hálftíma í lestur á dag og 16,4 prósent stelpna í sama árgangi. Í 7. bekk verja 17,8 prósent stúlkna innan við hálftíma í lestur daglega en hjá piltunum er hlutfallið 10 prósentustigum hærra, 27,8 prósent.Tafla úr skýrslunni sem sýnir hversu miklum tíma börnin verja í lestur.Strákum finnst leiðinlegra að lesa Í rannsókninni var jafnframt hversu skemmtilegt eða leiðinlegt krökkunum þykir að lesa og sýna niðurstöðurnar að þeim sem þykir mjög eða frekar leiðinlegt fjölgar eftir því sem nemendur eru eldri. Í 5. bekk segja til að mynda 17 prósent barna að þeim þykir mjög eða frekar leiðinlegt að lesa, í 6. bekk er hlutfallið komið upp í 23 prósent og í 7. bekk er það komið upp í 30 prósent. Auk þess sýna niðurstöðurnar áberandi kynjamun hvað þetta varðar þar sem strákum virðist finnast leiðinlegra að lesa en stelpum. Rannsóknin sem gerð var er viðamikil og kannaði marga þætti í lífi barnanna, meðal annars almennt líðan þeirra, samband við foreldra og fjölskyldu og neysluvenjur.20 prósent stúlkna í 7. bekk telja sig vera of feita Börnin voru meðal annars beðin um að gefa álit á vaxtalagi sínu þegar almenn líðan þeirra var könnuð. Niðurstöðurnar sýna að hlutfall barna sem telja sig of feit eykst eftir því sem þau eldast. Þá virðast það frekar vera svo að stelpur telji sig of feitar og meira eftir því sem þær eldast. Þannig telja 11 prósent stelpna í 5. bekk sig of feita, 15 prósent stúlkna í 6. bekk sig of feita og 20 prósent stelpna í 7. bekk. Á heildina litið telja flest börn sig þó vaxtalag sitt passlegt.Konan þvoi þvottinn Í ár voru krakkarnir í fyrsta skipti spurð út í viðhorf þeirra til kynjahlutverka í samfélaginu en spurt var út í verkaskiptingu á heimili þar sem kona og karl búa saman með börn og eru bæði í fullri vinnu. Spurt var út í húsverk á borð við þvott, þrif á íbúð, matarinnkaup, fara á foreldrafundi í skóla og gera við bílinn. Í langflestum tilfellum voru börnin á því að verkaskiptingin ætti að vera jöfn á milli kynjanna en til undantekninga heyrðu annars vegar það að þvo fötin og hins vegar bílaviðgerðir. 27 til 38 prósent barna í 5.-7. bekk sögðu þannig að konan ætti frekar að þvo þvottinn og 67 til 77 prósent barna sögðu að karlinn ætti frekar að sjá um bílaviðgerðir. Skýrsluna í heild má nálgast hér.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent „Sá spyr sem ekki veit“ Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í nýrri könnun Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Mennirnir séu íslenskir og tengist fjölskylduböndum Rannsókn á andláti, kosningastyrkir án eftirlits og Ómar heiðraður Dósaþjófur hótaði að bíta húsráðanda „Sá spyr sem ekki veit“ Tíu áfram í haldi grunaðir í tveimur stórfelldum málum Sjá segir sænska krónu tengda evru, sem hún er ekki Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Sjá meira