Alvogen vinnur til verðlauna í Madrid Sæunn Gísladóttir skrifar 21. október 2015 14:23 Róbert Wessman forstjóri Alvogen ásamt lykilstjórnendum fyrirtækisins í Evrópu.
Lyfjafyrirtækið Alvogen vann til verðlauna á alþjóðlegri lyfjasýningu í Madrid í síðustu viku. Það var alþjóðlega fagtímaritið Generics Bulletin sem stóð fyrir verðlaununum. Alvogen fékk fjórar tilnefningar af 13 sem í boði voru og hlaut verðlaun fyrir Fyrirtæki ársins í Evrópu fyrir uppbyggingu sína í Mið- og Austur Evrópu, meðal annars fyrir markaðssetningu á fjölmörgum líftæknilyfjum, segir í tilkynningu. Alvogen hefur vaxið hratt á helstu mörkuðum á svæðinu og þá sérstaklega í Rússlandi þar sem fyrirtækið keypti nýlega fimm hormónalyf af lyfjafyrirtækinu Bayer. Þetta er í annað sinn sem Alvogen er verðlaunað af tímaritinu en á síðasta ári hlaut fyrirtækið verðlaun sem Fyrirtæki ársins í Bandaríkjunum og fyrir Viðskiptaþróunarverkefni ársins í Evrópu. Á lyfjasýningunni (CPhI) voru samankomin öll stærstu lyfjafyrirtæki heims og um 40,000 gestir. Sýningin stóð í þrjá daga en um 45 lykilstarfsmenn Alvogen og dótturfyrirtækja áttu fundi með samstarfsfyrirtækjum og kynntu vörur og þjónustu. Alvogen hlaut mikið lof fyrir sýningarbás sinn sem var um 300 fermetrar að stærð og var byggður af starfsmönnum fyrirtækisins á Íslandi. Líkt og síðustu ár skoraði Alvogen á samstarfsfyrirtæki sín í keppni, nú í golfhermi sem komið var fyrir á sýningarbásnum. Spilað var á einum sögufrægasta golfvelli heims, St. Andrews í Skotlandi, þar sem sigurvegari fór holu í höggi. Róbert Wessman forstjóri Alvogen segir þátttöku í sýningunni mikilvæga fyrir markaðssetningu fyrirtækisins á heimsvísu. „Við höfum gert mikilvæga viðskiptasamninga á þessarri sýningu undanfarin ár og hún er mikilvægur vettvangur fyrir okkur til að kynna starfsemi okkar og hitta nýja og núverandi samstarfsaðila. Svo er alltaf gaman að hljóta viðurkenningar og gaman að sjá að það sé tekið eftir því sem við erum að gera. Við höfum vaxið hratt undanfarin ár og rekstur fyrirtækisins gengur vel sem er ánægjulegt. Það eru fá fyrirtæki í dag sem hafa vaxið jafn hratt og við og eru að ná eins góðum árangri á sínum mörkuðum,“ segir Róbert.
Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Fleiri fréttir Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Sjá meira