Viðskipti innlent

Landsvirkjun gefur út skuldabréf fyrir 6,3 milljarða

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hörður Árnason er forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Árnason er forstjóri Landsvirkjunar.
Landsvirkjun hefur undirritað samning um útgáfu skuldabréfs til 7 ára að fjárhæð 50 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 6,3 milljarða, í samstarfi við Arion banka. Bréfið mun bera 4,27% fasta vexti sem greiðast tvisvar á ári en höfuðstóll greiðist í einu lagi á lokagjalddaga. Landsvirkjun hefur heimild til uppgreiðslu að hluta eða að fullu á lánstímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Keldunni.

Skuldabréfaútgáfan er gerð undir EMTN (e. Euro Medium Term Note) ramma félagsins án ríkisábyrgðar og verður skráð í kauphöllinni í Luxemborg. Umsjónaraðili útgáfunnar er Arion banki. Andvirði útgáfunnar verður nýtt til almennrar fjármögnunar Landsvirkjunar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×