Tekjur stærstu fyrirtækja drógust saman Sæunn Gísladóttir skrifar 27. október 2015 07:00
Icelandair Group er stærsta fyrirtæki landsins miðað við tekjur árið 2014 samkvæmt lista Keldunnar sem birtist í gær. Fyrirtækið velti 142 milljörðum króna árið 2014. Marel er í öðru sæti á listanum með 110 milljarða í tekjur og Icelandic Group í því þriðja með tæplega 90 milljarða. Samtals veltu tíu stærstu fyrirtæki landsins 883,9 milljörðum króna á síðasta ári. Árið 2013 veltu þau hins vegar 962,7 milljörðum króna. Útflutningsfyrirtæki vega þyngst á topp 10 listanum. Styrking krónunnar gæti því hafa spilað inn í lægri veltu á síðasta ári. Stærstu fyrirtæki landsins breytast lítið milli ára. Ef listi Keldunnar er borinn saman við lista Frjálsrar verslunar yfir stærstu fyrirtæki landsins miðað við veltu árið 2013 má sjá að einungis tvö fyrirtæki detta út og tvö koma inn í staðinn; Promens var selt úr landi og dettur því út, einnig dettur Samskip út af listanum. Í staðinn koma Norðurál og Hagar inn. Samanlagður hagnaður þeirra tíu fyrirtækja sem skiluðu bestu afkomunni, samkvæmt lista Keldunnar, nam 144 milljörðum króna árið 2014. Efst á þeim lista voru viðskiptabankarnir þrír. Landsbankinn var með mestan hagnað eða 29 milljarða króna, Arion banki fylgdi fast á eftir með 28,6 milljarða og Íslandsbanki með 22,8 milljarða. Auk þeirra eru orkufyrirtækin fyrirferðarmikil á listanum. Afkoman hefur batnað milli ára um tæplega 45 milljarða, en hún nam 99,4 milljörðum árið 2013.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira