Pyntingar og mannát í Suður-Súdan Samúel Karl Ólason skrifar 28. október 2015 15:07 Í skýrslunni segir að lík hafi verið svívirt og brennd og fólk hafi verið neytt til að drekka blóð úr líkum og að borða brennt hold. Vísir/EPA
Borgarastyrjöld hefur nú geisað í Suður-Súdan í tæp tvö ár. Tugir þúsunda hafa fallið í átökunum þar í landi og tvær milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Afríkubandalagið hefur nú sakað stríðandi fylkingar um að beita íbúa miklu ofbeldi og misþyrmingum. Rannsóknarnefnd Afríkubandalagsins birti í dag skýrslu, þar sem fram kemur að fólk hafi þurft að þola pyntingar, nauðganir og jafnvel hefur fólk verið neytt til að borða mannakjöt. Hins vegar er tekið fram í skýrslunni að ekki hafi verið framið þjóðarmorð í átökunum. Í skýrslunni segir að lík hafi verið svívirt og brennd og fólk hafi verið neytt til að drekka blóð úr líkum og að borða brennt hold. Íbúar hafa komið einstaklega illa út úr átökunum. Rannsakendur fundu til dæmis merki um fjöldagrafir á þremur stöðum.Samkvæmt Guardian kemur einnig fram að átökin hafi ekki byrjað vegna tilraunar til valdaráns fyrrverandi varaforseta Súdan, eins og áður hefur verið talið. Heldur hafi átökin byrjað vegna deilna innan forsetavarða landsins sem hafi byrjað að berjast sín á milli. Þá hafi meðlimir mismunandi þjóðarbrota farið að berjast við hvorn annan upp úr því.
Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Sjá meira