Vill skipulag á haf- og strandsvæðum Svavar Hávarðsson skrifar 12. október 2015 09:00 Fiskeldisfyrirtæki getur fengið leyfi í firði sem sveitarfélag hefur ráðgert að nýta til ferðaþjónustu. Mynd/Jón
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, ætlar á yfirstandandi þingi að leggja fram frumvarp um stefnumótun og gerð skipulags á haf- og strandsvæðum við Ísland. Ástæðan er sú að eftirspurn eftir fjölbreyttri nýtingu þessara svæða fer stöðugt vaxandi. Þetta kom fram í setningarræðu Sigrúnar á Umhverfisþingi á föstudag, en hún sagði að hingað til hefði skort á heildstæða sýn yfir starfsemi á haf- og strandsvæðum við landið. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, gerði skipulag á haf- og strandsvæðum einnig að umtalsefni í sínu erindi. „Það er skrítið að hafa skipulag fyrir landið, þar sem sveitarfélögin þurfa að gera aðalskipulag fyrir gríðarstór landsvæði, en þú mátt ekki fara lengra en 115 metra frá stórstraumsfjöruborði. Eftir það er fjörðurinn, víkin eða flóinn einfaldlega ekki á vegum sveitarfélagsins. Sveitarfélag getur ákveðið að fjörður skuli vera frátekinn fyrir ferðaþjónustu, og þar skuli ekki vera iðnaður eða önnur starfsemi, en þá eru önnur batterí sem geta ákveðið að inni á firðinum skuli vera fiskeldiskvíar – sem eru góðar til síns brúks og mikilvægar í uppbyggingu í fiskeldi. En það er skrítið að það skuli ekki vera samhengi í þessum málum,“ sagði Halldór og vísaði til þess að Samband sveitarfélaga hefði farið þess á leit við ráðherra umhverfismála að ríki og sveitarfélög vinni að málinu í sameiningu.
Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira