Viðskipti innlent

Fiskafli tæp 93 þúsund tonn í september

Sæunn Gísladóttir skrifar
Aflinn metinn á föstu verði var 5,1% hærri en í september 2014 sem skýrist af auknum botnfiskafla á milli ára.
Aflinn metinn á föstu verði var 5,1% hærri en í september 2014 sem skýrist af auknum botnfiskafla á milli ára. Vísir/Egill
Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæp 93 þúsund tonn í september og dróst saman í tonnum um 6,7% samanborið við september 2014. Aflinn metinn á föstu verði var hins vegar 5,1% hærri en í september 2014 sem skýrist af auknum botnfiskafla á milli ára. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofunnar.

Botnfiskaflinn nam rúmum 36.300 tonnum í september sem er 7,9% meiri afli en í sama mánuði ári fyrr, þar af veiddust 22.900 tonn af þorski sem er 12,3%  aukning frá fyrra ári.  Uppsjávaraflinn nam tæpum 53.500 tonnum í september og dróst saman um 14,4% frá fyrra ári. Minni uppsjávarafla má að mestu rekja til þess að 10 þúsund tonnum minna veiddist af síld en í september 2014. Flatfiskaflinn nam rúm 1.800 tonnum í september og dróst saman um 23% miðað sama mánuð ári fyrr. Afli skel- og krabbadýra nam 965 tonnum  í september samanborið við 679 tonn í september 2014.

Á síðustu 12 mánuðum hefur heildarafli úr sjó aukist um rúm 265 þúsund tonn eða um tæp 25% ef miðað er við sama tímabil ári fyrr. Þessa aukningu má nær eingöngu rekja til aukins uppsjávarafla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×