Bílar

Tvinnbílar munu leysa af dísilbíla Mercedes Benz í BNA

Finnur Thorlacius skrifar
Tvinntengilbíll frá Mercedes Benz.
Tvinntengilbíll frá Mercedes Benz.
Þýskir bílaframleiðendur hafa átt nokkurri velgengni að fagna með dísilbíla í Bandaríkjunum undanfarin ár, en það mun líklega breytast á næstu árum. Líklegt er að dísilbílarnir verði leystir af hólmi með tvinntengilbílum sem eru bæði með bensínvélar og rafmagnsmótora.

Þessar hugleiðingar eru hafðar eftir forsvarsmönnum Mercedes Benz sem sagt hafa að dísilbílar séu tæknilega flóknir og dýrir í framleiðslu vegna þess að erfitt reynist að koma í veg fyrir óæskilegan útblástur þeirra og erfitt sé að hlýta lögum um mengun slíkra bíla. Því sé bæði auðveldara og ódýrara að framleiða tvinntengilbíla í því stranga umhverfi sem bílaframleiðendum er sett um mengun.

Þessi staðreynd hefur endurspeglast í þeim vandræðum sem Honda hefur átt með sína 2,2 lítra dísilvél. Honda hefur átt erfitt með að sníða útblástur hennar að bandarískum umhverfislögum en í leiðinni viðhalda því afli hennar sem krafa er gerð til af bandarískum bílkaupendum.

Ekki munu heldur vinsældir dísilbíla aukast þar vestra með nýjustu fréttum frá Volkswagen þar sem fyrirtækið var staðið að því að fara framhjá lögum með svindli þar sem hugbúnaður í bílum þeirra gat numið hvort verið væri að mæla útblástur þeirra og minnkað hann meðan á mælingum stóð. Fyrir þann gjörning þarf Volkswagen að borga dýru verði og gæti stefnt í réttarhöld og refsingar til handa þeim starfsmönnum Volkswagen sem ábyrgir voru fyrir því.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×