Innlent

Spyr hvort bann Reykjavíkurborgar nái einnig til lyfja fyrir MS-sjúklinga

Atli Ísleifsson skrifar
Yair Lapid gegndi embætti fjármálaráðherra Ísraels á árinum 2013 til 2014.
Yair Lapid gegndi embætti fjármálaráðherra Ísraels á árinum 2013 til 2014. Vísir/EP
Yair Lapid, fyrrverandi fjármálaráðherra Ísraels og leiðtogi  stjórnmálaflokksins Yesh Atid, spyr borgarstjórn Reykjavíkurborgar fjölda spurninga um ákvörðun hennar að sniðganga ísraelskar vörur í grein sem hann ritar í Fréttablaðið í morgun.

Ráðherrann spyr meðal annars hvort bannið nái til vara sem arabíski minnihlutinn í Ísrael framleiði, til arabískra þingmanna á Ísraelsþingi, til ísraelskra verksmiðja „þar sem tugir þúsunda Palestínumanna starfa“ og hvort einnig standi til að sniðganga lyfið Copaxone sem ætlað er MS-sjúklingum.

„Ef svarið við öllum þessum spurningum er „já“, þá skal ég láta kyrrt liggja og óska ykkur ánægjulegs lífs þar til kemur að hinu óumflýjanlega hjartaáfalli (sem er leitt en gangráðurinn var líka fundinn upp í Ísrael). Hinn möguleikinn er að einhver í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki hugsað þetta mál til enda,“ segir í greininni.

Engin samsvörun milli stærðar deilunnar og umfjöllunar

Lapid heldur svo áfram að fjalla um deilur Ísraela og Palestínumanna og segir þær eina minnstu deilu Miðausturlanda. „Í raun er engin samsvörun milli stærðar deilunnar og fjölmiðlaumfjöllunar um hana.“

Hann segir þó ekki geta hunsað þá staðreynd að „nokkur þúsund saklausra“ hafi látið lífið í átökum Ísraela og Palestínumanna.

„Mér finnst það hræðilegt. Það heldur fyrir mér vöku og svo er um flesta Ísraelsmenn. Að auki má benda á þá staðreynd – sem sem auðvelt er að sannreyna – að á 67 árum voru færri saklausir Palestínumenn drepnir en á einum mánuði (!) í Sýrlandi. Á þessu sama tímabili létu um 12 milljónir manna lífið í Arabaheiminum. Einfaldur útreikningur sýnir að deila Ísraels og Palestínu olli dauða 0,01% af þeim sem féllu í átökum í heimi múslíma.

Hver er þá afstaða borgarstjórnar Reykjavíkur gagnvart heimi múslíma? Hyggst borgarstjórnin sniðganga hann líka? Í heild?“ spyr Lapid.

Lesa má grein Lapid í heild sinni hér.


Tengdar fréttir

Ráðherra segir sniðgöngu áhrifalausa

Utanríkisráðherra segir það hafa engin áhrif þótt borgin sniðgangi ísraelskar vörur. Hann efast um að ákvörðunin standist lög um opinber innkaup.

Vissu ekki hvaða vörur þau voru að sniðganga

Borgarfulltrúar Reykjavíkurborgar vissu ekki hvaða vörur þeir voru að sniðganga þegar borgin samþykkti tillögu um viðskiptabann á vörur frá Ísrael í nafni mannúðar og samstöðu með Palestínumönnum.

„Mátti auðvitað búast við viðbrögðum“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir hörð viðbrögð við ákvörðun borgarinnar um að sniðganga vörur frá Ísrael ekki hafa komið sér á óvart. Unnið sé að því að útfæra ákvörðina eins vel og hægt sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×