Posabilunin á föstudag: Hafði áhrif á um 3.600 posa Atli Ísleifsson skrifar 24. ágúst 2015 16:37 Um 15 þúsund posar eru í umferð á landinu þessa stundina. „
Þetta hafði áhrif á um 3.600 posa hjá um tvö þúsund söluaðilum okkar,“ segir Elvar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Verifone, um posabilunina sem kom upp á föstudaginn. Fjölmargir áttu þá í vandræðum með að greiða með kortum í posum í verslunum landsins og stóð bilunin yfir í rúma klukkustund. Elvar segir starfsmenn Verifone enn vera að fara yfir nákvæmlega hvað gerðist og gera ráðstafanir þannig að þetta endurtaki sig ekki. „Þrátt fyrir þetta sem kom upp þá lágu posarnir okkar ekki alveg niðri heldur minnkaði afkastageta þeirra um helming á þessu tímabili sem um ræðir. Það voru því um 50 prósent af færslum sem fóru í gegn. Það var ekki algert stopp.“Hafi samband við sinn viðskiptabanka Elvar segir að fréttir hafi borist af því að margir hafi ítrekað látið strauja kortin sín og hafi því verið margrukkuð fyrir innkaup. „Það er Reiknistofa bankanna sem sér um að leiðrétta það svo það er í raun úr okkar höndum. Ég veit að þeir tóku allar færslur þar sem var fleiri en ein færsla með sömu upphæð og bakfærðu í dag.“ Elvar segir að þetta muni leiðréttast endanlega á fimmtudaginn, en bendir fólki á að ef það er enn með einhverja tvífærslu inni þá þurfi það að hafa samband við sinn viðskiptabanka.Bilun í eldvegg Hann segir að bilunin hafi skýrst af því að aðalkerfið hjá Verifone hafi bilað og þá sent mikið magn á varakerfið. „Svo virðist sem það hafi valdið bilun í eldvegg í varakerfinu sem leiddi til þess að það hætti að svara líka. Við erum búin að bregðast við því og stækka minnið í eldveggnum og gert ráðstafanir þannig að þetta endurtaki sig ekki.“
Tengdar fréttir Biluðu kortaposarnir: „Hvar eru peningarnir mínir?“ Margir gátu ekki greitt með kortum í dag vegna bilaðra kortaposa. Þrátt fyrir það fóru peningar út af reikningum þeirra. 21. ágúst 2015 20:24 Víða langar raðir vegna bilunar í posum Fólk heldur í hraðbanka til að ná í reiðufé. 21. ágúst 2015 15:35 Mest lesið Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira
Biluðu kortaposarnir: „Hvar eru peningarnir mínir?“ Margir gátu ekki greitt með kortum í dag vegna bilaðra kortaposa. Þrátt fyrir það fóru peningar út af reikningum þeirra. 21. ágúst 2015 20:24
Víða langar raðir vegna bilunar í posum Fólk heldur í hraðbanka til að ná í reiðufé. 21. ágúst 2015 15:35