Óhagstætt að leigja í Reykjavík samanborið við nágrannaborgir Jóhann Óli Eiðsson skrifar 10. ágúst 2015 12:01 Óhagstætt er að leigja í Reykjavík. vísir/vilhelm
Leiguverð íbúðarhúsnæðis hefur fylgt þróun söluverðs náið síðustu fjögur árin eða allt frá því að farið var að mæla vísitölu leiguverðs. Þetta kemur fram í nýútkominni Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans. Í Hagsjánni er einnig borið saman hvort það borgi sig að leigja íbúð eða kaupa. Til þess stillir deildin markaðverði eignarinnar upp á móti ársleigu reiknað á fermetra. Með því fæst hlutfall sem kallað er „price to rent ratio“. Þumalputtareglan segir að hlutfallið undir fimmtán sé hagstæðara að kaupa. Sé það á lokaða bilinu 16-20 borgar það sig að kaupa ef ætlunin er að eiga eignina til langs tíma en fari hlutfallið yfir tuttugu er réttast að leigja. Sem stendur er hlutfallið í einfölduðu dæmi þrettán og því tiltölulega óhagstætt að leigja um þessar mundir. Til að hlutfallið nái tuttugu, og það verði hagstætt að leigja, þarf leiguverð að lækka um þriðjung. Sé Reykjavík borin saman við aðrar borgir á Norðurlöndunum sést að hlutfallið er áberandi lægra hér heldur en annarsstaðar. Í Stokkhólmi, Helsinki, Osló, Bergen og Gautaborg er til að mynda mun hagstæðara að leigja en hér. Sú breyting hefur orðið á leigumarkaði síðustu misseri að fyrirtæki hafa í auknum mæli keypt íbúðir til útleigu. Sé litið á síðustu tæpu tíu ár hafa tæplega 2.000 íbúðir einstaklinga verið seldar fyrirtækjum. Hagsjána í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Fleiri fréttir Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf