Aron og félagar úr leik í Gullbikarnum eftir sögulegt tap Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. júlí 2015 00:01 Aron Jóhannsson getur ekki horft á Jamaíku fagna fyrra marki sínu í kvöld. vísir/getty
Bandaríska landsliðið í fótbolta fær ekki tækifæri til að verja Gullbikarinn á heimavelli, en liðið féll úr leik í kvöld þegar það tapaði gegn Jamaíka, 2-1, í undanúrslitum keppninnar. Tapið er sögulegt því aldrei í 24 ára sögu Gullbikarins hefur annað lið en Brasilía, Kólumbía eða Mexíkó slegið Bandaríkin úr keppni. Bandaríkin hafa unnið keppnina fimm sinnum. Jamaíka skoraði tvívegis á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik. Darren Mattocks kom Jamaíku í 1-0 á 31. mínútu og á 36. mínútu tvöfaldaði Giles Barnes forystuna og þannig stóðu leikar í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var aðeins þriggja mínútna gamall þegar Bandaríkin minnkuðu muninn, en það gerði Michael Bradley. Hann fylgdi eftir skoti Clint Dempseys, en Aron Jóhannsson átti upphaflega skot á markið sem markvörðurinn hélt ekki. Aron fékk tvö tækifæri til að skora í leiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið. Honum var síðan skipt af velli á 73. mínútu. Þrátt fyrir stífar sóknarlotur bandaríska liðsins tókst því ekki að jafna leikinn og Jamaíka því komið í úrslitaleikinn. Þar mætir liðið annað hvort Mexíkó eða Panama, en seinni undaúrslitaleikurinn fer fram seinna í nótt. Þetta eru mikil vonbrigði fyrir bandaríska liðið sem ætlaði sér svo sannarlega að verða meistari á heimavelli, en í kvöld var spilað í Georgia Dome í Atlanta.
Fótbolti Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Sjá meira