Reitir keyptu húsnæði Hótels Íslands Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. maí 2015 19:53 Guðjón Auðunsson forstjóri Reita. Félagið var skráð á markað fyrr í vor. vísir/valli
Öll fasteignafélögin sem skráð eru í Kauphöllina skiluðu árshlutareikningi fyrir fyrsta fjórðung í dag. Leigutekjur stærsta félagsins, Reita, á tímabilinu námu 2,1 milljarði króna en voru 2,06 milljarðar á sama tímabili árið áður. Hagnaður tímabilsins var 834 milljónir en 563 milljónir árið áður. „Starfsemi félagsins á fjórðungnum einkenndist fyrst og fremst af undirbúningsvinnu fyrir skráningu félagsins í kauphöll. Litlar breytingar voru á eignasafninu á fjórðungnum, verðbólga er lág og fjármögnun félagsins hafði áður verið komið í gott horf,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í afkomutilkynningu. Hann segir að í upphafi annars ársfjórðungs keypti félagið fasteignina Ármúla 9, sem hýsir Hótel Ísland, fyrir tæpa 3,7 milljarða króna. Heildarhagnaður Eikar nam 879 milljónum króna eftir skatta . Rekstrartekjur námu 1.429 milljónum króna og nam rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir 993 milljónum króna. Líkt og með Reiti er uppgjör Eikar litað af háum einskiptiskostnaði á tímabilinu vegna skráningar félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf. en félagið var skráð í kauphöllina í lok apríl 2015. Hagnaður Regins nam 574 milljónum króna eftir tekjuskatt. Rekstrartekjur námu 1.242 milljónum króna og þar af námu leigutekjur 1.107 milljónum króna. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs er 23%. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 799 milljónir króna.
Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Sjá meira