Aðstandendur Arðvis sagðir hafa nýtt sér vanþekkingu fjárfesta Birgir Olgeirsson skrifar 6. febrúar 2015 11:56 Ólafur Stefánsson (t.v.) og Bjarni Þór Júlíusson. Vísir/YouTube
Bjarni Þór Júlíusson og Úlfar Guðmundsson neituðu báðir sök við þingfestingu í Héraðsdómi Reykjaness í morgun í máli embættis sérstaks saksóknara í gegn þeim. Bjarni Þór og Úlfar eru ákærðir fyrir fjárdrátt en þeim er gefið að sök að hafa dregið sér fé með því að hafa sem fyrirsvarsmenn og prókúruhafar Costa og Ardvis ráðstafað fjármunum þeirra í eigin þágu og til greiðslu útgjalda sem voru ótengd rekstri félaganna. Nemur upphæðin rúmlega 41 milljón króna á 6 ára tímabili, á árunum 2007 til 2012. Bjarni er auk þess ákærður fyrir meiriháttar bókhaldsbrot í störfum sínum fyrir Costa og Ardvis fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að varðveita fylgiskjöl með fullnægjandi hætti og vanrækt að færa tilskilið bókhald fyrir félagið. Þingfesting fór fram í málinu í júlí í fyrra en ákæra embættis sérstaks saksóknara var afturkölluð vegna formgalla.Ágóðinn átti að fara í góðgerðamál Í ákæru embættis sérstaks saksóknara er rakinn aðdragandi þeirrar háttsemi sem Bjarna Þór og Úlfari er gefin að sök. Þeir tóku yfir stjórn félagsins Costa ehf. í nóvember 2006 þar sem þeir urðu stjórnarmenn félagsins en Bjarni Þór gegndi stjórnarformennsku. Engar breytingar urðu á stjórn félagsins fyrr en í mars árið 2010 þegar Bjarni fór úr sæti aðalmanns í sæti varamanns í stjórn og gerðist jafnframt framkvæmdastjóri félagsins. Arðvis hf. var stofnað þann 29. apríl árið 2010 og var Bjarni eini hluthafi félagsins að því er fram kemur í ákærunni en í ágúst árið 2010 voru hluthafarnir orðnir tveir, þeir Bjarni og Úlfar sem sátu jafnframt í stjórn Costa ehf. Það félag var síðan úrskurðað gjaldþrota þann 3. maí árið 2012. Arðvis hf. fékk samkvæmt ákærunni vilyrði fyrir 125 milljóna króna í hlutfé og yfirverði hlutfjár á þremur og hálfu ári. Fyrstu samningar um kaup á hlutafé voru gerðir þann 1. ágúst árið 2007 eða löngu fyrir stofnun félagsins. Hluthafar lögðu fram fjármuni til félagsins á grundvelli loforða og fyrirheita sem gefin voru af ákærðu um tilgang og markmið félagsins um stofnun vefverslunar sem myndi láta ágóða renna til góðgerðamála.Aðeins 340 þúsund krónur á reikning Arðvis Embætti sérstaks saksóknara segir Arðvis hf. hafa einungis átt einn bankareikning í Sparisjóði Suður-Þingeyinga og staða bankareikningsins ekki sögð endurspegla þær fjárhæðir sem einstaklingar og lögaðilar höfðu greitt fyrir hlutabréf í félaginu. Við yfirferð á bankayfirliti miðað við 31. desember árið 2010 kom fram að einungis 340 þúsund krónur af greiddu hlutafé höfðu verið lagðar inn á reikning félagsins.Tilgangur greiðslna lá ekki fyrir Þá var Costa ehf skráð fyrir þremur reikningum í Landsbankanum hf., samkvæmt ákærunni, og segir embætti sérstaks saksóknara að svo virðist sem einn reikningur Costa ehf hafi verið notaður sem aðalreikningur beggja félaga. Á umræddum reikningi eru að finna millifærslur frá einstaklingum sem eru ekki á hluthafalista félaganna. Þannig eiga nokkrir einstaklingar að hafa greitt inn á reikning Costa, að minnsta kosti 3,6 milljónum króna, án þess að tilgangur greiðslna liggi fyrir. Þá hafa borist samtals 2,7 milljónir króna inn á reikning félagsins frá hluthöfum, umfram það sem samningar þeirra um kaup á hlutabréfum í félaginu kveða á um.Fjármagnið fari í hringi Forsvarsmenn félaganna hafa sagt tilgang Costa ehf. að stofna Arðvis hf. og átti Costa ehf. að safna fjármagni til að reka Arðvis hf. sem þjónustuaðila fyrir Corpus Vitalis samtökin. Fjármagn Arðvis hf. átti síðan að nota til rekstur Costa ehf. Segir embætti sérstaks saksóknara að af þessu sé ljóst að fjármagnið fari í hringi. „Hvergi er í kaupsamningum fjallað um hugsanlegan eignarrétt hluthafa Costa ehf. á hlutabréfum í Arðvis hf. eins og auglýst er í kynningum og hvergi er að finna í samþykktum félaganna ákvæði sem heimila framsal eignaréttinda og ekki liggjaf fyrir upplýsingar um eignatengsl eða samstarfssamninga milli þeirra að öðru leyti en því að sömu einstaklingar eiga meirihluta í báðum félögum. Erfitt er að sjá hvernig Costa ehf., sem nú er gjaldþrota, ætlar að framfylgja ofangreindum áætlunum sínum,“ segir í ákæru embættis sérstaks saksóknara.Fengu 200 milljónir Þá kemur fram að í ákærunni að félögin tvö, Arðvis hf. og Costa ehf, fengu greiddar tæplega 200 milljónir króna inn á bankareikninga sína á tímabilinu 2010 til og með apríl 2012. Í yfirliti yfir bankareikninga þeirra er að finna færslur sem virðast vera vegna einkaneyslu og eru nefndar færslur vegna leigu einbýlishúsi í einkaeigu í Fannafold sem Bjarni Þór Júlíusson tilgreinir sem heimilisfang sitt á samningum um sölu hlutabréfa þrátt fyrir að lögheimili hans sé skráð á Seltjarnarnesi. Þá segir embættið fjármuni félaganna oft notaða til að greiða fyrir aðgang að sundlaugum, sólbaðsstofum, líkamsræktarstöðvum, kaup á bíómiðum og fleira.Ekki ljóst hvað taldist til launa Segir embættið fyrirliggjandi framburð vitna benda til þess að Bjarni hafi engan greinarmun gert á fjármunum félaganna Costa ehf. og Arðvis hf. og persónulegum fjármunum sínum. Auk þess kemur fram í ákærunni að samningar um launakjör Bjarna hefðu verið mjög á reiki og ekki unnt að festa hendur á hvað teldist til launa og annarra hlunninda svo sem hvað varðar bifreiðahlunnindi og fatapeninga.Ólafur Stefánsson.Vísir/DaníelSagðir hafa nýtt sér vanþekkingu fjárfesta Þá er það jafnframt ætlun ákæruvaldsins að þeir fjárfestar sem lögðu fjármagn til félaganna í formi hlutafjár hafi gert það í þeim tilgangi sem þeim var kynntur, oftast af ákærða Bjarna, sem var áhættufjárfesting í félagi sem starfaði að þróun og gerð upplýsingakerfa í tengslum við sölu og viðskipti á veraldarvefnum og myndi hluti ágóðans renna til góðgerðamála, en ekki í þeim tilgangi að ákærðu gætu farið með fjármuni félaganna með þeim hætti sem áður hefur verið lýst. „Eins og málið var kynnt fyrir fjárfestum má ætla að ákærðu hafi notfært sér vanþekkingu aðila á áhættufjárfestingum og þann göfuga tilgang félaganna sem ákærðu lýstu gagnvart hluthöfum og fjárfesta, segir í ákærunni.Taldi miklar líkur á að verkefnið væri rugl Handknattleiksmaðurinn Ólafur Stefánsson var einn þeirra setti fjármagn í Arðvis en DV greindi frá því í að um tíu milljónir króna hefðu verið að ræða en Ólafur hafði sagt við DV að hann hefði litlar áhyggjur af þessari fjárfestingu og taldi miklar líkur á því að verkefnið væri rugl.
Tengdar fréttir Höfðu fé af rúmlega hundrað Íslendingum Bjarni Þór Júlíusson, sem kenndur er við Arðvís, er sakaður um að draga sér rúmlega 40 milljónir króna. 8. júlí 2014 12:18 Húsleitir og handtökur á vegum sérstaks saksóknara Þrír af aðstandendum fjárfestingarfélagsins Ardvis voru handteknir í morgun í rassíu embættis sérstaks saksóknara, að því er segir á vef DV.is. Meðal þeirra er helsti hugmyndafræðingur Ardvis, Bjarni Þór Júlíusson, að því er segir í frétt DV. Samhliða handtökunum fara fram húsleitir vegna rannsóknar embættisins. Þremenningarnir hafa verið færðir til yfirheyrslu hjá embættinu. 24. október 2012 12:23 Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira
Höfðu fé af rúmlega hundrað Íslendingum Bjarni Þór Júlíusson, sem kenndur er við Arðvís, er sakaður um að draga sér rúmlega 40 milljónir króna. 8. júlí 2014 12:18
Húsleitir og handtökur á vegum sérstaks saksóknara Þrír af aðstandendum fjárfestingarfélagsins Ardvis voru handteknir í morgun í rassíu embættis sérstaks saksóknara, að því er segir á vef DV.is. Meðal þeirra er helsti hugmyndafræðingur Ardvis, Bjarni Þór Júlíusson, að því er segir í frétt DV. Samhliða handtökunum fara fram húsleitir vegna rannsóknar embættisins. Þremenningarnir hafa verið færðir til yfirheyrslu hjá embættinu. 24. október 2012 12:23