Landvernd höfðar mál á hendur Landsneti vegna kerfisáætlunar Atli Ísleifsson skrifar 30. janúar 2015 20:00 Landvernd telur kerfisáætlun vera í ósamræmi við raforkulög. Vísir/Stefán
Landvernd hefur stefnt Landsneti til ógildingar á kerfisáætlun 2014 til 2023. Landvernd telur fyrirtækið hafa brotið lög með því að taka ekki afstöðu til nema brots af innsendum athugasemdum við gerð kerfisáætlunar og umhverfismats hennar, líkt og lög bjóða. Í fréttatilkynningu frá Landvernd segir að félagið telji kerfisáætlun vera í ósamræmi við raforkulög. „Í fyrsta lagi þar sem Landsnet setji fram sína eigin raforkuspá sem engin lagaheimild sé fyrir og í öðru lagi þar sem fyrirtækið gefi sér í þeirri spá þær forsendur að allt að allur orkunýtingarflokkur rammaáætlunar komi til framkvæmda á næstu 10 árum. Loks bendir Landvernd á að ekki hafi í kerfisáætluninni verið fjallað um umhverfisáhrif raunhæfra valkosta, líkt og jarðstrengja eða blandaða leið loftlína og jarðstrengja.“ Í tilkynningunni segir að árið 2014 hafi Landsnet í fyrsta sinn gert umhverfismat á kerfisáætlun í kjölfar úrskurðar umhverfis- og auðlindaráðherra um skyldu til þess. Landvernd telji umhverfismatinu ólokið, og því hafi stjórn fyrirtækisins verið óheimilt að samþykkja kerfisáætlunina. „Landvernd telur Landsnet hafa brotið gegn hagsmunum samtakanna og félagsmanna þeirra með því að taka ekki afstöðu til athugasemda samtakanna við afgreiðslu kerfisáætlunar. Í samþykkt Landsnets á kerfisáætlunsegir m.a.: „Megin[]viðbrögð við athugasemdum munu […] koma fram við mótun næstu kerfisáætlunar og umhverfismat hennar“. Þessi frestun er óheimil en samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum áætlana ber Landsneti við afgreiðslu áætlunarinnar að hafa hliðsjón af umhverfisskýrslu og þeim athugasemdum sem borist hafa. Umhverfismatinu lýkur ekki fyrr en samráði er lokið og brugðist hefur verið við innsendum athugasemdum. Kerfisáætlun var því samþykkt áður en umhverfismati lauk, og er það ólögmætt. Landvernd unir því ekki að brotið sé gegn réttindum sem almenningi er veittur með lögum um umhverfismat áætlana, Evróputilskipunum sem þau byggja á og hinum alþjóðlega Árósasamningi, sem Ísland hefur fullgilt. Umsögn Landverndar var ein af 23 umsögnum sem Landsnet sniðgekk með þessum hætti. Samþykkt stjórnar Landsnets á kerfisáætlun er einnig í ósamræmi við ákvæði raforkulaga því Landsnet gerði eigin raforkuspá í stað þess að ganga út frá raforkuspá Orkuspárnefndar. Lagastoð er ekki fyrir því að fyrirtækið felli sína eigin spá um raforkuþörf inn í kerfisáætlun. Í áætluninni hefur Landsnet tekið sér það bessaleyfi að ganga út frá að allt að allur orkunýtingarflokkur núverandi rammaáætlunar verði nýttur á næstu tíu árum, sem er gildistími kerfisáætlunar. Engin lagaheimild er fyrir þeim forsendum. Samkvæmt rammaáætlunarlögunum er virkjanahugmynd í orkunýtingarflokki fráleitt það sama og að ákvörðun hafi verið tekin um að virkja. Nýtingarflokkur rammaáætlunar verður því ekki tekinn hrár upp í kerfisáætlun. Í umhverfismatsskýrslu Landsnets eru loftlínur, jarðstrengir og blönduð útfærsla nefnd sem valkostir við gerð umhverfismats. Þrátt fyrir það gerði Landsnet bara mat á umhverfisáhrifum loftlína. Landvernd telur þetta ekki standast lög um mat á umhverfisáhrifum áætlana, en þar er kveðið skýrt á um að meta beri áhrif raunhæfra valkosta. Því bar Landsneti að meta alla valkostina þrjá. Kerfisáætlunin stenst því ekki lög. Lögmál ehf. rekur málið fyrir hönd Landverndar,“ segir í tilkynningunni.
Tengdar fréttir Krefst þess að Landsnet fjarlægi háspennulínurnar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar krefst þess að Landsnet fjarlægi háspennulínur í landi bæjarins og segir þær hamla eðlilegri þróun sveitarfélagsins. 12. desember 2014 07:30 Umhverfismatið gæti kostað 150 milljónir Landsnet áætlar að kostnaður fyrirtækisins við umhverfismat vegna áforma um lagningu háspennulínu um Sprengisand nemi á bilinu 100 til 150 milljónum króna. 13. desember 2014 11:15 Mest lesið Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Innlent Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá Innlent Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Innlent Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Erlent Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Innlent Inga vill helst fjármálaráðuneytið Innlent Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Erlent Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Innlent Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Innlent Fleiri fréttir Hvalveiðar heimilaðar og gosmóða yfir höfuðborginni Bjarkey veitir Hval leyfi til að veiða 128 langreyðar Siðanefnd sýknar Halldór og Vísi af kæru Arnars Þórs Rafmagnsleysi í Kópavogi og Fossvogi Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Kennurum án kennsluréttinda fjölgar Einn stunginn þegar tveir hópar voru að útkljá sín mál Vaktin: Bjarkey gefur grænt ljós á hvalveiðar Kosningastjóri og áhrifavaldur aðstoða Bjarkeyju Inga vill helst fjármálaráðuneytið Skemmdarverk unnin á lögreglubílum Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Vilja skoða að gera RÚV aftur að hefðbundinni ríkisstofnun Ók í gegnum grindverk heimahúss og fannst skammt frá „Þessi kostnaður hverfur ekki“ Þrettán ungliðahreyfingar fordæma breytingar á útlendingalögum Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Spáir sól um allt land í vikunni 800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú Fjárlaganefnd leggur til opnun sendiráðs á Spáni Ráðherra hafi ekki mátt láta rannsaka meðferðarheimilið Efast um heimild ráðherra til rannsóknar Rænulaus maður á almannafæri reyndist ferðamaður í sólbaði Stjórnvöld ætla að auka við mannúðarstuðning á Gasa Kynna nýtt kerfi veiðistjórnunar Segir magnafslátt á umhverfissóðaskap skelfilega hugmynd Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja Unnið á spítalanum lengi en óttast ekki hagsmunaárekstra Úr sex nöfnum að velja á nýjasta sveitarfélag landsins Reglur um samskipti við fjölmiðla ekki tilraun til þöggunar Sjá meira
Krefst þess að Landsnet fjarlægi háspennulínurnar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar krefst þess að Landsnet fjarlægi háspennulínur í landi bæjarins og segir þær hamla eðlilegri þróun sveitarfélagsins. 12. desember 2014 07:30
Umhverfismatið gæti kostað 150 milljónir Landsnet áætlar að kostnaður fyrirtækisins við umhverfismat vegna áforma um lagningu háspennulínu um Sprengisand nemi á bilinu 100 til 150 milljónum króna. 13. desember 2014 11:15