Nítján látnir í sprengjuárás á markað í Nígeríu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 10. janúar 2015 21:44 Árásir sem þessar eru algengar í Maiduguri. Mynd úr safni. Vísir/AFP
Minnst nítján eru látnir eftir sprengingu á fjölmennum markaði í norðausturhluta borgarinnar Maiduguri í Nígeríu. Óstaðfestar fréttir AFP herma að barnung stúlka hafi borið sprengjuna sem sprakk í hádeginu í dag að íslenskum tíma. Enginn hefur lýst sprengjuárásinni á hendur sér. Guardian hefur eftir talsmanni lögreglunnar í Borno, héraðinu þar sem Maiduguri er, að átján til viðbótar væru slasaðir. Óttast er að tala látinna muni hækka. Starfsmaður Rauða krossins sagði í samtali við AFP að margir hafi særst lífshættulega.Sjá einnig: Óttast að tvö þúsund hafi látist í árásum Boko Haram í vikunni Árásir sem þessar eru algengar í Maiduguri, sem er höfuðborg héraðsins, vegna þess hve nálæg hún er yfirráðasvæði hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Tvær sjálfsmorðssprengjuárásir voru gerðar á sama markaði á síðasta ári. Þúsundir hafa flúið frá borginni Baga síðustu daga eftir mannskæðar árásir hryðjuverkasamtakanna en margir hafa leitað til Maiduguri. Óttast er að allt að tvö þúsund manns hafi látist í árásum hryðjuverkasamtakanna á Baga, sem er í norð-austur Nígeríu, fyrir viku síðan. Árásirnar eru einar þær mannskæðustu frá því að liðsmenn Boko Haram hófu árásir sínar í landinu árið 2009. Markið samtakanna er að koma á íslömsku ríki. Tveir aðrir létust þegar bíll sprakk í Potiskum, sem einnig er í norðausturhluta landsins. Boko Haram framdi hryðjuverk í Potiskum í nóvember síðastliðnum, þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í skóla í borginni með þeim afleyðingum að 58 létust. Óljóst er hver stendur að baki bílsprengjunni.
Tengdar fréttir Óttast að tvö þúsund hafi látist í árásum Boko Haram í vikunni Yfirvöld í Borno-héraði í Nígeríu óttast að um tvö þúsund hafi látist í árásum Boko Haram á bæinn Baga í norð-austur Nígeríu. 8. janúar 2015 13:29 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira
Óttast að tvö þúsund hafi látist í árásum Boko Haram í vikunni Yfirvöld í Borno-héraði í Nígeríu óttast að um tvö þúsund hafi látist í árásum Boko Haram á bæinn Baga í norð-austur Nígeríu. 8. janúar 2015 13:29