Frábært skallamark Aguero bjargaði Argentínu | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júní 2015 11:30 Sergio Aguero fagnar hér sigurmarki sínu. Vísir/EPA
Sergio Aguero, markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar í vetur, kom Argentínumönnum til bjargar í nótt í öðrum leik liðsins í Suður-Ameríkukeppninni í Síle. Sergio Aguero skoraði eina mark leiksins þegar Argentína vann 1-0 sigur á Úrúgvæ í öðrum leik liðanna í riðlinum en Argentínumenn náðu aðeins jafntefli á móti Paragvæ í fyrsta leiknum. Úrúgvæmenn eru ríkjandi Suður-Ameríkumeistarar en leika án Luis Suarez sem er enn að taka út leikbann með landsliðinu eftir bitið fræga á HM í Brasilíu í fyrra. Það var hart tekist á í leiknum í nótt og hann var hreinlega grófur. Argentínumenn voru þó betra liðið og átti sigurinn fyllilega skilinn. Úrúgvæmenn gáfu samt ekkert eftir á móti Lionel Messi og félögum og náðu að skapa sér færi sem hefðu getað stolið stigi í leiknum en það var markalaust í hálfleik. Sigurmark Sergio Aguero kom á 56. mínútu leiksins en hann skoraði þá með frábærum skalla á nærstöng eftir fyrirgjöf frá liðsfélaga sínum í Manchester City, Pablo Zabaleta. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá leiknum og þar á meðal þetta laglega sigurmark. Argentína mætir nú Jamaíku í lokaleiknum en Jamaíkamennirnir eiga ekki lengur möguleika á því að komast áfram. Úrúgvæ hefur einu stigi minni í þriðja sæti riðilsins og þarf helst stig í lokaleiknum til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum.
Fótbolti Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Sjá meira