Tugir milljarða í húfi í Hæstarétti í dag ingvar haraldsson skrifar 1. október 2015 10:10 Mál Atlantsolíu gæti orðið fordæmisgefandi fyrir fjölmörg fyrirtæki. Vísir/Hari
Mál Atlantsolíu gegn Landsbankanum vegna gengisláns verður endurflutt fyrir Hæstarétti klukkan eitt í dag. Niðurstaða málsins gæti haft í för með sér tuga milljarða útgjöld fyrir íslensk fyrirtæki samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda. Hagar töpuðu sambærilegu máli Hæstiréttur dæmdi Arion banka í vil í sambærilegu máli gegn Högum árið 2013. Í tilkynningunni kemur fram að Hæstiréttur hafi talið að hægt væri að krefja Haga um viðbótarvexti af gengisláni þar sem ekki hefði verið nægur aðstöðumunur milli Haga og bankans, meðal annars vegna stærðar fyrirtækisins og sérfræðiþekkingar Þess vegna mætti bankinn krefja fyrirtækið um vexti sem næmu mismuninum á allt að 21% seðlabankavöxtum annars vegar og samningsvöxtum hins „Bankarnir hafa sumir hverjir síðan túlkað þennan dóm með afar hæpnum hætti þannig að hann ætti við um öll fyrirtæki yfir tilteknum stærðarmörkum, burtséð frá eðli starfseminnar. Dómar hafa fallið í héraðsdómi sem styðja þann skilning. Þeir hafa verið mjög umdeildir. Fá fyrirtæki kannast við annað en að mikill aðstöðumunur sé á milli þeirra og fjármálafyrirtækja, enda miðar regluverk um fjármálafyrirtæki í raun að því að sá aðstöðumunur sé fyrir hendi,“ segir í tilkynningunni.Málið sagt fordæmsgefandiHæstiréttur hafi hins vegar ekki fengið sambærilegt mál til meðferðar eftir að dómur féll í Hagamálinu. Mál Atlantsolíu gegn Landsbankanum snýr að því hvort nógu lítill aðstöðumunur hafi verið á milli fyrirtækisins og bankans til að bankinn geti krafið Atlantsolíu um viðbótarvexti af láninu. „Málið var flutt fyrir Hæstarétti 10. september en er nú endurflutt að beiðni réttarins, sem hefur fjölgað dómurum úr þremur í fimm.“ Í tilkynningunni kemur fram að mál Atlantsolíu verði fordæmisgefandi fyrir stöðu fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. „Verði Atlantsolía talið of stórt fyrirtæki til að það fái viðbótarvextina endurgreidda getur það haft í för með sér tuga milljarða útgjöld fyrir íslensk fyrirtæki sem að mati bankanna eru nógu stór til að teljast ekki í aðstöðumun gagnvart þeim. Forsvarsmenn fjölda fyrirtækja bíða þess í ofvæni að sjá hvar og hvernig Hæstiréttur dragi línuna um skilgreiningu á fyrirtækjum sem fullnaðarkvittanareglan gildir ekki um.“
Mest lesið Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira