Mega rækta marijúana til einkaneyslu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. nóvember 2015 07:38 Fólk safnaðist saman við hæstarétt Mexíkó og fékk sér jónu til að fagna úrskurðinum. vísir/epa
Hæstiréttur Mexíkó hefur úrskurðað að það gangi gegn stjórnarskrá landsins að banna fólki að rækta marijúanaplöntur til einkaneyslu. Málið er einstakt en fjórir einstaklingar úr samtökum sem berjast fyrir því að ræktun og einkaneysla marijúana verði leyfð mega nú rækta sínar eigin plöntur og reykja efnið úr þeim. Úrskurðurinn tekur aðeins til þeirra fjögurra sem höfðuðu málið en að mati sérfræðinga er um stórt skref að ræða í landi sem hefur löngum glímt við hryllilega ofbeldisglæpi og ýmis önnur samfélagsleg vandamál tengd fíkniefnainn-og útflutningi. Ýmsir telja að úrskurðurinn leiði til þess að marijúana verði lögleitt í landinu en ólöglegt er að selja efnið. Frá árinu 2009 hefur hins vegar mátt vera með allt að fimm grömm af marijúana á sér. Mexíkóska þjóðin er klofin í afstöðu sinni til lögleiðingu fíkniefna og hefur til að mynda forseti landsins, Enrique Peña Nieto, lýst sig algjörlega andsnúinn því að einhverju verði breytt í fíkniefnalöggjöfinni. Baráttan fyrir lögleiðingu er því rétt að byrja í Mexíkó en ýmsir fögnuðu úrskurðinum í vikunni með því að kveikja sér í jónu fyrir framan hæstarétt landsins.
Tengdar fréttir Kannabis lögleitt í tveimur ríkjum Bandaríkjanna Enn á eftir að telja atkvæði í Alaska en líklegt þykir að lögleiðing verði samþykkt þar. Lögleiðingu var hafnað í Flórída þrátt fyrir að 57 prósent kjósenda sögðu já. 5. nóvember 2014 10:44 Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Hart sótt að fjármálaráðherra Innlent Hvöss suðvestanátt og él fram á laugardagsmorgun Innlent „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Fleiri fréttir Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Sjá meira
Kannabis lögleitt í tveimur ríkjum Bandaríkjanna Enn á eftir að telja atkvæði í Alaska en líklegt þykir að lögleiðing verði samþykkt þar. Lögleiðingu var hafnað í Flórída þrátt fyrir að 57 prósent kjósenda sögðu já. 5. nóvember 2014 10:44