Tony Parker orðinn sá stigahæsti í sögu EM Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. september 2015 12:15 Tony Parker er leiðtoginn í franska liðinu. vísir/getty
Tony Parker, bakvörður franska landsliðsins og NBA-liðsins San Antonio Spurs, varð í gær stigahæsti leikmaður úrslitakeppni Evrópumótsins frá upphafi. Tony Parker var fyrir leikinn búinn að jafna Grikkjan Nikolaos Galis sem skoraði 1030 stig á EM á árunum 1981 til 1991. Tony Parker gerði gott betur en að bæta metið því hann skoraði 16 stig í 69-66 sigri Frakka á Póllandi. Frakkar hafa nú unnið alla þrjá leiki sína á mótinu. „Þegar ég byrjaði ferilinn minn þá sá ég aldrei fyrir mér að komast hingað. Þetta er eins og draumur. Við erum að tala að vera orðinn stigahæsti leikmaður Evrópumótsins frá upphafi. Það er mikill heiður að vera í umræðunni sem einn af bestu leikmönnum Evrópu allra tíma," sagði Tony Parker. „Það er stórfurðulegt að Frakki sé á toppnum á þessum lista en ekki menn eins og (Toni) Kukoc eða (Drazen) Petrovic sem áttu báðir magnaðan feril í Evrópu," sagði Parker. Tony Parker er orðinn 33 ára gamall og hefur skorað þessi 1046 stig sín í 62 leikjum sem gera 16,9 stig að meðaltali í leik. Hann spilaði á sínum fyrsta Evrópumóti árið 2000. Tony Parker er með 16,7 stig og 3,7 stoðsendingar á 27,7 mínútum að meðaltali í fyrstu þremur leikjum sínum á Eurobasket 2015. Hann lét sér nægja 11 stig á 20 mínútum í stórsigrinum á Bosníu.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira