Hvað gerðist og hvað er helst að frétta?
Við förum yfir málin í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Nú þegar fjórum keppnum er lokið á tímabilinu er ljóst að Mercedes bíllinn er á heildina litið bestur. Eftir að Rosberg vann í Ástralíu hefur Hamilton unnið þrjár næstu keppnir.
Röð atvika kom í veg fyrir harða keppni milli þeirra tveggja í Kína. Rosberg átti til að mynda afleidda ræsingu og tapaði þremur sætum á fyrsta hring. Hann hóf keppni í fjórða sæti á ráslínu eftir laka tímatöku.
Hamilton átti auðvelt með að búa sér til öruggt forskot og halda því út alla keppnina. Hamilton virðist vera á svo miklu skriði um þessar mundir að líklega er fátt sem getur komið í veg fyrir áframhaldandi sigurgöngu hans. Spurningin er, tekst honum að vinna fjórðu keppnina í röð í Barcelona?

Liðið hefur gefið út að miskilningur hafi valdið því að Sebastian Vettel neitaði að hleypa Daniel Ricciardo fram úr sér.
Þeir voru á sömu dekkjagerð en Ricciardo var töluvert hraðskreiðari. Vettel var sagt að hleypa honum framúr. Vettel spurði þá um hvaða dekk Ricciardo væri að nota. Honum var tjáð að þeir væru á sömu dekkjum, þá sagði Vettel „óheppinn“ og hélt áfram að verjast Ricciardo.
Eftir keppnina kom svo fram að þeir hefðu verið á mismunandi keppnisáætlun. Vettel ætlaði að stoppa þrisvar en Ricciardo tvisvar. Vettel hafði ekki fengið að vita að áætlunin hefði breyst og hann ætti sjálfur að spara dekkinn og stoppa tvisvar. Því hafi hann talið sig þurfa að verjast Ricciardo.
Ricciardo komst að lokum fram úr án teljandi vandræða.

Fernando Alonso sannaði að Ferrari er ekki búið að vera í ár. Hann skilaði bílnum heim í þriðja sæti. Þetta eru fyrstu verðlaun Ferrari á tímabilinu.
Hverjir eru næstbestir? Mercedes menn eru augljóslega lang bestir. Ferrari, Red Bull og Force India virðast hins vegar gera tilkall til þess að vera næst besta liðið.
Ef litið er til stöðunnar í keppni bílasmiða má sjá að Red Bull tók fram úr Force India í keppninni í gær og er í öðru sæti. Ferrari er í fjórða.
Sé hins vegar litið á keppni ökumanna er Alonso kominn í þriðja sætið á eftir Mercedes mönnunum. Nico Hulkenberg á Force India er fjórði og Vettel fimmti og Ricciardo sjötti.
Svo virðist sem Red Bull sé stöðugast á eftir Mercedes.

Hulkenberg varð sjötti í keppninni. Hann er í fjórða sæti í keppni ökumanna og ekur fyrir Force India. Lið sem hefur aldrei unnið Formúlu 1 kappakstur.
Margir sérfræðingar spáðu því að hann færi til Ferrari fyrir tímabilið eftir að ljóst varð að Felipe Massa yrði ekki þar. Einhverjir telja að hann eigi ekki möguleika á sæti hjá stóru liði vegna þess að hann sé of hávaxinn og þungur. Hann hefur hins vegar sannað annað.
Hann hefur verið í stigasæti allar keppnir ársins og var einnig mjög sannfærandi í fyrra með 51 stig og 10. sæti í keppni ökumanna. Líklega eru stærri liðin farin að endurskoða sjónarmið sín og hugsa sér að taka hann til sín. Spurning hver verður fyrstur?
Verður honum kannski skipt inn hjá Ferrari, fyrir Kimi Raikkonen sem hefur átt lélegt tímabil hingað til?

Fyrir mistök var köflótta lokaflagginu veifað þegar Lewis Hamilton lauk hring 55 af 56. Þá segir í keppnisreglunum að sé flagginu veifað fyrr en ætlað var þá ljúki keppninni á hringnum áður en því var veifað.
Þetta þýðir að keppninni lauk á eftir 54 hringi. Eina breytingin á úrslitum keppninnar varð sú að Kamui Kobayashi á Caterham færist úr 17. sæti í 18. sæti. Hann tók fram úr Jules Bianchi á Marussia á 56. hring.
Ricciardo var undir lokinn kominn nálægt því að komast fram úr Alonso og tryggja sér þar með þriðja sæti. Hefði hann gert það á 55. eða 56. hring hefði verðlaunasæti aftur verið tekið af honum eftir keppnina. En hann endaði keppni í Ástralíu í öðru sæti en var svo dæmdur úr leik eftir á.
Engin skýring hefur verið gefin á þessu atviki en svona er Formúla 1, það getur allt gerst.