„Felur í sér gríðarlega mismunun“ Jón Júlíus Karlsson skrifar 12. mars 2014 13:39 Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna. Vísir/Pjetur og Arnþór
Forstjórar tveggja af stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins saka Seðlabanka Íslands um að halda uppi fölsku gengi íslensku krónunnar. Krónan sé óeðlilega sterk og það dragi úr tekjum sjávarútvegsfyrirtækja. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir það skipta máli fyrir atvinnulífið í heild sinni að gengi íslensku krónunnar sé rétt skráð.Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar HF, og Vilhjálmur Vilhjálmur, forstjóri HB Granda eru harðorðir í garð Seðlabankans í samtali við bandarísku fréttaveituna Bloomberg. Þeir segja gengi íslensku krónunnar vera úr takti við raunveruleikann. Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna, tekur undir orð Eiríks og Vilhjálms. „Við hljótum að leggja áherslu á það að gengi sé rétt skráð. Sjávarútvegurinn er gríðarlega háður því hvert gengið á gjaldmiðlinum er,“ segir Kolbeinn. Bloomberg bendir á í umfjöllun sinni að evran kosti aðeins 155 krónur hérlendis en 239 krónur erlendis. „Ein birtingamyndin er þessi. Það er tvöfalt skráð gengi á íslenska krónu sem skapar ástand sem felur í sér gríðarlega mismunun eftir því hvort að þú ert að búa til gjaldeyri í gegnum þína reglulega starfsemi, líkt og sjávarútvegurinn gerir, eða öðrum aðilum hleypt hér inn í landið með krónur á allt öðru gengi. Þetta er birtingarmynd þessara gjaldeyrishafta sem er vonlaust að búa við,“ bætir Kolbeinn við. Kolbeinn kallar eftir skýrri stefnu stjórnvalda. „Það þarf að marka skýra stefnu í því hvernig á að aflétta þessum höftum þannig að allir sitji við sama borð og að gengi gjaldmiðilisins sé rétt skráð. Stöðugleiki þarf að ríkja til framtíðar í gjaldeyrismálum.“
Tengdar fréttir Útgerðarforstjórar kvarta yfir gengi krónunnar Frostjórar HB Granda og Þorbjarnar segja gengi krónunnar of hátt og haldið uppi af stjórnvöldum og Seðlabankanum. 12. mars 2014 10:28 Mest lesið „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent Kann best við sig í háspennunni Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Deilan um boltann fer alla leið í Hæstarétt AGS leggur til skattahækkanir Sjá meira
Útgerðarforstjórar kvarta yfir gengi krónunnar Frostjórar HB Granda og Þorbjarnar segja gengi krónunnar of hátt og haldið uppi af stjórnvöldum og Seðlabankanum. 12. mars 2014 10:28