Dóri DNA og Seppi "böttluðu“ fyrir utan Bónus í Mosó Kjartan Atli Kjartansson skrifar 26. júlí 2014 17:55 Dóri DNA grjótharður Mynd/IllD
Rappararnir Dóri DNA og Seppi rifjuðu upp gamla takta og „böttluðu“ hvorn annan í Mosfellsbæ fyrr í dag. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan var Dóri, einnig þekktur sem Halldór Halldórsson, klæddur í búning eins og Nintendo-hetjan Super Mario. Í dag eru vinir Dóra að steggja hann, en hann mun giftast Magneu Guðmundsdóttur, unnustu sinni, í sumar. Þau trúlofuðust í Rússlandi fyrir tæpum tveimur árum. Dóri og Seppi, einnig þekktur sem Elvar Gunnarsson, voru meðal fremstu „battlara“ íslensks rapps fyrir um áratug síðan. Þeir tóku báðir þátt í keppninni Rímnastríð sem var einskonar Íslandsmót í „battli“. Seppi vann keppnina árið 2002 og Dóri árið 2004. Dóri DNA var meðlimur hljómsveitanna Bæjarins bestu og 1985! og Elvar var í 110 Rottweilerhundum, Afkvæmum Guðanna og síðar í hljómsveitinni Ha Why?„Battl“ fer þannig fram að tveir keppendur fá fyrirfram ákveðinn tíma til þess að niðurlægja hvorn annan í rappformi. Rímurnar sem þeir rappa eru yfirleitt samdar á staðnum. Þessi listgrein var afar vinsæl hér á landi fyrir um áratug síðan. Keppnirnar Rímnastríð voru vel sóttar og var keppnin árið 2004 sýnd beint á sjónvarpsstöðinni PoppTíví. Einnig var stór „battl“-keppni haldin í Norðurkjallara MH um nokkurra ára skeið. Margir af helstu röppurum landsins stigu á stokk og tóku þátt í þessum keppnum. Hér að neðan má heyra eitt þekktasta lag Dóra DNA, sem ber titilinn Mosó.
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira