Flugvélarnar sem Færeyingar skoða Kristján Már Unnarsson skrifar 8. júlí 2014 12:00 Brasilíska Embraer 145-þotan tekur um 50 farþega.
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways stefnir að því að taka minni flugvélartegund í notkun fyrir næsta sumar sem tæki 50-70 farþega. Jafnframt verður Airbus A319-þotum félagsins fækkað úr þremur niður í tvær frá næstu áramótum. Þetta er liður í nýrri stefnumörkun félagsins sem felst í því að byggja upp þéttriðnara net áætlunarflugs milli Færeyja og næstu nágrannalanda; tíðni ferða verður aukin til Noregs, Bretlandseyja og Íslands. Þetta er gert undir slagorðunum „Atlantic Airways kemur heim“ en þar er fallið frá fyrri stefnu félagsins um að hasla sér völl á alþjóðlegum leiguflugsmarkaði með Airbus-þotunum, en þær taka allt að 144 farþega.Kanadíska Bombardier CRJ-200 tekur um 50 farþega.Jørgen Holme, forstjóri Atlantic Airways, segir í samtali við fréttastofuna að þrjár flugvélartegundir séu til skoðunar; Bombardier CRJ 200, Embraer 145 og Bombardier Q400. Tvær þær fyrstnefndu eru þotur, taka um 50 farþega og fljúga á um 800 kílómetra hraða. Sú þriðja er hraðfleyg skrúfuþota, tekur um 70 farþega og flýgur á um 660 kílómetra hraða.Bombardier Q400, skrúfuþotan hraðfleyga, tekur um 70 farþega.Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi kom fram að færeyska flugfélagið hættir í lok ágúst notkun á Avro-100 þotum sínum, sem sinnt hafa Íslandsfluginu undanfarin 19 ár, og eru með um 100 sæti. Samkvæmt flugáætlun sem búið er að kynna færist flugið þá til Keflavíkur þar sem enn er óvíst hvort Airbus-þotur félagsins fái að nota Reykjavíkurflugvöll.Jørgen Holme, forstjóri Atlantic Airways.Mynd/Jan Müller.Þegar Jørgen Holme var spurður hvort færslan til Keflavíkur væri til frambúðar sagði hann það óráðið. Hann tók þó sérstaklega fram að félagið vildi hafa þann möguleika áfram að geta notað Reykjavíkurflugvöll.
Tengdar fréttir Færeyingar fá nýja flugstöð Færeyingar sækja nú hratt fram í flugmálum. Þeir eru að fá þrjár nýjar þotur, reisa nýja flugstöð, eru nýbúnir að stækka flugvöllinn og sjá fram á vaxandi þyrluflug til olíuborpalla. Fyrsta Airbus-þota Atlantic Airways er að koma inn til lendingar á einu flugbraut Færeyja en lenging hennar úr 1.250 metrum upp í 1.800 metra í fyrra var forsenda þess að færeyska flugfélagið réðst í kaup á þremur slíkum þotum. 3. apríl 2013 18:54 Vilja nota Airbus á Reykjavíkurflugvelli Færeyska flugfélagið Atlantic Airways óskar eftir því að fá að nota 144 sæta Airbus-þotu í áætlunarflugi sínu milli Reykjavíkur og Færeyja. Þetta yrði stærsta flugvélin sem nýtti Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu flugi. Airbus-þota Færeyinga hefur reyndar einu sinni lent á Reykjavíkurflugvelli, í ágústmánuði í fyrrasumar, og fékk þá höfðinglegar móttökur. Færeyska flugfélagið fær aðra Airbus-vél nú í vor og þá þriðju í október. Eldri þotur Færeyinga, af gerðinni British Aerospace, taka 95 farþega, og hafa verið stærstu vélarnar í áætlunarflugi til Reykjavíkur, en Airbus A319 tekur helmingi fleiri, eða 144 farþega. 1. apríl 2013 19:30 Færeyjaflugið burt úr borginni Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur auglýst að Færeyjaflugið flytjist til Keflavíkur eftir sex vikur. 7. júlí 2014 20:45 Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira
Færeyingar fá nýja flugstöð Færeyingar sækja nú hratt fram í flugmálum. Þeir eru að fá þrjár nýjar þotur, reisa nýja flugstöð, eru nýbúnir að stækka flugvöllinn og sjá fram á vaxandi þyrluflug til olíuborpalla. Fyrsta Airbus-þota Atlantic Airways er að koma inn til lendingar á einu flugbraut Færeyja en lenging hennar úr 1.250 metrum upp í 1.800 metra í fyrra var forsenda þess að færeyska flugfélagið réðst í kaup á þremur slíkum þotum. 3. apríl 2013 18:54
Vilja nota Airbus á Reykjavíkurflugvelli Færeyska flugfélagið Atlantic Airways óskar eftir því að fá að nota 144 sæta Airbus-þotu í áætlunarflugi sínu milli Reykjavíkur og Færeyja. Þetta yrði stærsta flugvélin sem nýtti Reykjavíkurflugvöll í reglubundnu flugi. Airbus-þota Færeyinga hefur reyndar einu sinni lent á Reykjavíkurflugvelli, í ágústmánuði í fyrrasumar, og fékk þá höfðinglegar móttökur. Færeyska flugfélagið fær aðra Airbus-vél nú í vor og þá þriðju í október. Eldri þotur Færeyinga, af gerðinni British Aerospace, taka 95 farþega, og hafa verið stærstu vélarnar í áætlunarflugi til Reykjavíkur, en Airbus A319 tekur helmingi fleiri, eða 144 farþega. 1. apríl 2013 19:30
Færeyjaflugið burt úr borginni Færeyska flugfélagið Atlantic Airways hefur auglýst að Færeyjaflugið flytjist til Keflavíkur eftir sex vikur. 7. júlí 2014 20:45