Fékk draumaveðrið í tónlistarmyndbandið Gunnar Leó Pálsson skrifar 23. desember 2014 09:45 Ragnar Zolberg er hér ásamt Danieli Gildenlöw við tökur á myndbandinu. Mikið var lagt í myndbandið eins og sést á myndinni. „
Við fengum akkúrat það veður sem við vildum fá í myndbandið okkar, fallegan byl og storm,“ segir tónlistarmaðurinn Ragnar Zolberg. Hann og félagi hans úr sænsku hljómsveitinni Pain of Salvation, Daniel Gildenlöw, komu hingað til lands fyrir skömmu til að taka upp tónlistarmyndband. Það er við lagið Falling Home, sem er jafnframt titillag nýjustu plötu sveitarinnar. „Þetta er fyrsta lagið sem ég er með í að semja með bandinu. Daníel kom bara einn því við erum bara tveir í þessu lagi, það er svona „acoustic“ og rólegt,“ segir Ragnar. Myndbandið er tekið upp í Elliðaárdalnum og sá Hilmir Berg Ragnarsson um upptökurnar. „Við gerðum þetta líka sérlega íslenskt með því að vera með skartgripi frá Sign og klæðast feldi frá Eggerti feldskera.“ Þetta er í annað skiptið sem Daníel kemur til Íslands en hann kom síðast fyrir tólf árum með bandið sitt til að spila á Kaffi Reykjavík. Hann og sveitin hans þurfti þó að hætta við þar sem það var búið að tvíbóka staðinn. „Geir Ólafs var einnig bókaður og hann neitaði að gefa frá sér sitt „spott“. Þannig að þeir gátu ekki spilað giggið sitt, sem er frekar fyndið,“ segir Ragnar og hlær.Ragnar Zolberg í snjóstorminum sem gekk yfir á meðan myndbandið var tekið upp.Hann spilar á gítar í hljómsveitinni og er einnig farinn að syngja mikið. „Ég leysti Daníel af og var aðalsöngvari sveitarinnar þegar hann veiktist á sínum tíma. Eftir það er ég farinn að syngja meira.“ Ragnar segir það alltaf jafn gaman að koma heim en hann býr í Noregi, í sveitinni skammt frá Ósló og kann vel við sig þar. „Það er alltaf jafn gott að koma heim en samt alltaf jafnlítið frí því maður er alltaf að gera eitthvað. Það er samt algjör lúxus að fá að koma heim,“ bætir söngvarinn við. Hann hefur haft í nógu að snúast undanfarið og er meðal annars að koma úr fimm vikna löngu tónleikaferðalagi um Bandaríkin með Pain of Salvations. „Við erum að semja fyrir næstu plötu og svo er ég einnig að semja lög með mjög þekktum pródúsent fyrir heimsfrægt þungarokksband, en það er leyndarmál hvaða band það er, vegna samningaviðræðna,“ útskýrir Ragnar. Þá er hann einnig að vinna að annarri sólóplötu. Hann er ekki viss hvar hann ætli að halda sig um jólin. „Ég er mikið jólabarn en veit ekki alveg hvort ég verð hér um jólin eða úti. Þetta hefur verið svo annasamt haust að ég get ekki tekið ákvörðun strax,“ segir Ragnar léttur í lundu.
Mest lesið Ofboðslega stolt af dóttur sinni Lífið „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Lífið Klæddu sig upp sem frambjóðendur Lífið Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór Lífið „Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“ Lífið Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Lífið Dóttir Jolie og Pitt vill ekki heita Pitt lengur Lífið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng Lífið Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Lífið Fleiri fréttir Dóttir Jolie og Pitt vill ekki heita Pitt lengur „Býr ekki lítil kerling innra með okkur öllum?“ Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng „Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“ Krakkatían: Forsetaefni, Disney og tónlist Klæddu sig upp sem frambjóðendur Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum Tvöföld veisla hjá Gnarr feðgum Ofboðslega stolt af dóttur sinni Bannaði Snorra að kjósa Arnar Þór „Nú er þessi sprettur á enda“ Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Innipúkinn farinn að taka á sig mynd Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Ellefu eftirtektarverð eldhús Forsetaáskorunin: Grefur upp gamlar gersemar úti um allan heim. Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Skrifuðu bók um Sólrúnu Öldu og brunann í Mávahlíð Nafn konunnar flúrað á það allra heilagasta Annar bakaradrengur í ofninum Sjáðu svartþrestina yfirgefa hreiðrið Af vængjum fram: Eins og í bíómynd þegar þau byrjuðu loksins saman Forsetaáskorunin: Áhugatöframaður og hefur safnað skeljum og eldspýtustokkum Sjá meira