Vélasnilld Volvo Finnur Thorlacius skrifar 30. apríl 2014 11:45 302 hestöfl úr fjórum strokkum og 2,0 lítra sprengirými og 6,3 lítra eyðsla. Vel gert hjá Volvo. Caradvice
Hvort velur maður milli afls eða sparneytni? En hvað um að fá bæði? Verkfræðingum Volvo hefur eiginlega tekist að koma í veg fyrir að kaupendur bíla þurfi að velja á milli afls og sparneytni því í mörgum að bílum þeirra verður nú boðið uppá 302 hestafla fjögurra strokka vél sem eyðir aðeins 6,3 lítrum á hverja hundrað kílómetra. Það er ári magnað að þeir hafi náð 302 hestöflum úr 2,0 lítra fjögurra strokka vél og verkfræðingar Volvo segja að fjöldi strokka og sprengirými sé ekki lengur ráðandi þáttur er kemur að afli vél. Það sé miklu fremur það magn lofts sem streymir í gegnum vélarnar, þá ekki síst forþjöppur þeirra. Því sé hægt að minnka og létta vélar bíla mjög mikið og það bæði hjálpar við lækkun eyðslu þeirra og eykur akstureiginleika bílanna. Einnig skipti það miklu máli að vera með fjölgíra skiptingar, en þessari vél fylgir 8 gíra sjálfskipting. Með slíkri skiptingu séu bílarnir oftast á hárrétum snúningi til að tryggja lægst mögulegu eyðslu. Þessi nýja vél Volvo hefur að auki lækkað koltvísýringsmengun um 30% og munar um minna. Einn af þeim bílum Volvo sem mun fá þessa 302 hestafla vél er S60 bíllinn og verður hann ári snöggur, en það tekur hann 5,6 sekúndur að ná 100 km hraða. Volvo mun bjóða þessa vél í nokkrum gerðum bíla sinna af árgerð 2015 og þeir eru um það bil að streyma í sýningarsali Volvo umboða um allan heim.
Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Mögulegt að hitinn fari í tuttugu stig í fyrsta sinn í ár Veður