Aron: Þeir fengu blóð á tennurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. janúar 2014 16:47 Aron Kristjánsson á hliðarlínunni í dag. Vísir/Daníel „
Þetta var mjög erfiður leikur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Aron Kristjánsson eftir tveggja marka sigur Íslands á Makedóníu, 29-27, á EM í handbolta í dag. „Ég var ansi hræddur um það fyrir leik að ef þeir fengu smá blóð á tennurnar og leyfi til að hanga lengi á boltanum þá yrði erfitt að eiga við þá,“ sagði Aron í samtali við Rúv eftir leikinn en Ísland byrjaði illa í dag. „Við vorum að skapa fín færi í sókninni en klikkuðum á nokkrum dauðafærum. Það var einnig einbeitingarleysi í varnarleiknum og þá komust þeir fjórum mörkum yfir strax í byrjun. Þá fengu þeir blóð á tennurnar og þetta varð meiri barátta fyrir okkur.“ Strákarnir komu sér þó hægt og rólega inn í leikinn og náðu undirtökunum. „Við börðumst allan tímann og vorum með þriggja marka forystu eftir fyrri hálfleik. En svo kemur aftur slæm byrjun í upphafi síðari hálfleiks og eftir það var þetta erfitt.“ Aron sagði erfitt að eiga við hægan leikstíl Makedóníu og þunga línumenn. „Það er erfitt að eiga við þá þegar þeir fá að athafna sig svona. Ég var ósáttur við störf þeirra svartklæddu í leiknum,“ sagði Aron. „En það var flott hjá strákunum að klára þennan leik eftir að hafa byrjað svona illa.“
EM 2014 karla Tengdar fréttir Umfjöllun og myndir: Ísland - Makedónía 29-27 | Annar sigur strákanna í röð Karlalandslið Íslands í handbolta er komið í annað sæti milliriðils 1 á Evrópumótinu í Danmörku eftir 29-27 sigur á Makedóníu á Evrópumótinu í Danmörku í dag. Liðið spilaði sinn slakasta leik á mótinu en landaði engu að síður sigri. 20. janúar 2014 13:43 Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Aftur tapaði Real og rauða spjaldið tvisvar á loft Fótbolti Dagskráin í dag: Bíta Úlfarnir líka fast í Liverpool? Sport Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Handbolti Fleiri fréttir Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Haukar - Valur 19-23 | Valskonur bikarmeistarar ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH Elvar allt í öllu í útisigri í Íslendingslag „Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“ „Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“ „Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið“ Uppgjörið: Valur - KA/Þór 29-22 | Valskonur fylgja Haukum í úrslit Leik lokið: Haukar-Fram 32-29 | Haukakonur aftur í bikarúrslitin „Af hverju ekki?“ Sjá meira
Umfjöllun og myndir: Ísland - Makedónía 29-27 | Annar sigur strákanna í röð Karlalandslið Íslands í handbolta er komið í annað sæti milliriðils 1 á Evrópumótinu í Danmörku eftir 29-27 sigur á Makedóníu á Evrópumótinu í Danmörku í dag. Liðið spilaði sinn slakasta leik á mótinu en landaði engu að síður sigri. 20. janúar 2014 13:43