Cameron Diaz brjáluð út í þáttastjórnanda í Ástralíu 22. júlí 2014 17:30 Drew Barrymore og Cameron Diaz Vísir/Getty
Cameron Diaz skellti á í útvarpsviðtali við Kyle & Jackie O Show á útvarpsstöðinni KIIS 106.5 í vikunni eftir að annar þáttastjórnandanna, Kyle, gerði grín að fíknivanda vinkonu hennar, leikkonunnar Drew Barrymore. Diaz og meðleikari hennar í myndinni Sex Tape, Jason Segel, voru saman í viðtali í útvarpsþættinum þegar Jackie O minntist á að Giselle Eisenberg, barnastjarnan sem leikur dóttur þeirra í myndinni, minnti hana á Barrymore í kvikmyndinni klassísku, E.T., frá árinu 1982. „Það er rétt, svona þegar þú nefnir það. Og hún er jafn lífleg og klár og Drew. Hún er ótrúlega góð stelpa,“ sagði Diaz um Eisenberg. „Vonum bara að hún sleppi því samt að dópa eins og Drew Barrymore. Það er gaman að vera utanaðkomandi og fylgjast með svoleiðis, en ég ímynda mér að það sé ekki gaman að vera sá sem er sjálfur í ruglinu,“ svaraði hinn þáttastjórnandinn Kyle Sandilands. Diaz var ekki skemmt eftir að Kyle lét ummælin falla. „Ég er viss um, Kyle, að þú hafir aldrei prófað eiturlyf, er það nokkuð? Eða gert tilraunir með áfengi og annað? Alltaf gert allt rétt? Til hamingju með það.“ Kyle reyndi þá að skipta um umræðuefni og ræða nýjan kærasta Diaz, Benji Madden. Eftir vandræðalega þögn reyndi hinn þáttastjórnandinn, Jackie O, enn að breyta um umræðuefni og hóf að tala um þyngdartap Jasons Segel, en Diaz var ekki skemmt. „Við þurfum að fara. Afsakið það. Það er verið að reka á eftir okkur.“ Eftir að þau skelltu á, viðurkenndi Jackie O að hlutirnir hefðu ekki farið eftir áætlun. „Jæja, þetta byrjaði mjög vel og endaði mjög illa, held ég. Vel gert, Kyle. Þú eyðilagðir þetta viðtal. Þú afsakar ef þér finnst ég of hreinskilin, en þú fórst að tala um fíknivanda bestu vinkonu hennar... Hún er besta vinkona hennar. Og svo Benji. Það vita allir hversu prívat Cameron Diaz er um einkalíf sitt.“ Sandilands lét eins og ekkert væri. „Kannski hefðu þau bara átt að kaupa auglýsingar ef þau vildu selja myndina.“
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Fleiri fréttir Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Sjá meira