Ákvörðun um auknar greiðslur til skattrannsóknarstjóra skoðuð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 28. nóvember 2014 07:00 Langflest skattaskjólsmál tengjast Lúxemborg. Skattrannsóknarstjóri hefur áhyggjur af því hvernig vinna á úr gögnum sem embættinu berast lækki fjárframlög til þess. „
Það var ákveðið að taka af embætti skattrannsóknarstjóra eingreiðslu úr ríkissjóði síðustu tveggja til þriggja ára sem veitt var ár hvert þegar byrjað var að fara í frekari skattrannsóknir. Ekki var lengur talin þörf á þessu viðbótarframlagi nú. En það er með þessa stofnun eins og margar aðrar að þær vilja halda í einskiptisgreiðslur sem þær hafa fengið.“ Þannig útskýrir Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, 40 milljóna króna lækkun á fjárheimildum til skattrannsóknarstjóra á fjárlögum næsta árs. Hún tekur það þó fram að fjárlagavinnu sé ekki lokið þegar hún er spurð að því hvort það skjóti ekki skökku við að lækka fjárheimildir til embættisins þegar settur hefur verið á laggirnar starfshópur á vegum fjármálaráðuneytisins sem skoða á hvort lagalegar hindranir séu á kaupum á gögnum úr skattaskjólum og hvort veita eigi sakaruppgjöf vegna skattaundanskota gegn því að menn gefi sig fram. Niðurstöður starfshópsins gætu leitt til þess að skattrannsóknarstjóra bærust miklu fleiri gögn til rannsóknar. Skattrannsóknarstjóri, Bryndís Kristjánsdóttir, lýsti í viðtali við Fréttablaðið í gær yfir áhyggjum af því hvernig vinna ætti úr gögnum sem embættinu bærust lækkuðu fjárframlögin. Yrðu ekki breytingar á fjárheimildunum blasti við uppsögn fimm til sex starfsmanna nú í desember. Bryndís tók jafnframt fram að ekki væri ljóst á hvaða verkefnum fækkunin kæmi niður. „Fjárlaganefnd hefur ekki tekið ákvörðun um hvort auka eigi greiðslur til skattrannsóknarstjóra eða hvort þetta verði látið standa óbreytt samkvæmt frumvarpinu. Fjárlagavinnan stendur fram á þriðjudag. Ég vil að meirihlutinn taki sameiginlega ákvörðun um þetta mál og ætla þess vegna ekki að tjá mig um hvort það sé eðlilegt að embættið fái meira fé.“
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira