Kynleg komment borin á torg Gunnar Leó Pálsson skrifar 29. júlí 2014 09:30 Mikill fjöldi fólks lagði leið sína á Káratorg þegar það var opnað um helgina. mynd/einkasafn „
Við höfum fengið frábærar viðtökur þó svo að það sé alltaf hiti í bílastæðaumræðunni í borginni,“ segir Jón Pétur Þorsteinsson, en hann ásamt Helgu Hrönn Þorsteinsdóttur og Ölbu Solís stendur fyrir því að lífga upp á Káratorg. Torgið sem er við gatnamót Njálsgötu, Frakkastígs og Kárastígs hefur áður verið nýtt sem bílastæði. „Reykjavíkurborg stendur fyrir þessu verkefni sem kallast Torg í biðstöðu og vill að fá hópa til þess að gera vannýtt svæði í borginni að flottum almenningsrýmum. Á þessu bílastæði sem okkur var úthlutað komast fjórir bílar fyrir en á opnunardeginum okkar, sem var síðastliðinn laugardag voru um fimmtíu manns á þessu fjögurra bíla svæði hverja stund þannig að það var mjög góð mæting,“ útskýrir Jón Pétur.Jón Pétur Þorsteinsson.Á Káratorgi verða þau með ýmsa viðburði og ætla sjá til þess að torgið verði vel nýtt og að almenningur geti tekið þátt við að lífga upp á torgið. „Við viljum fá fólk til þess að taka þátt með okkur og þræddum til dæmis streng á vegg þar sem að fólk getur hengt upp skilaboð sem það festir með þvottaklemmu. Það eru meðal annars ýmsar kynlegar athugasemdir á veggnum,“ segir Jón Pétur. „Það virðist vera að langflestir séu mjög hrifnir, en það eru alltaf einhverjir sem vilja bílastæðin. Það komu nokkrir brjálaðir einstaklingar sem voru ekki ánægðir með að við værum að taka þessi fjögur bílastæði.“ Jón Pétur er ánægður með þetta átak Reykjavíkurborgar að glæða flottum og hentugum stöðum lífi. „Það vantar svona staði í Reykjavík, það er ekki svo sterk menning af þessu tagi í borginni, ég fagna þessu átaki.“ Framundan hjá þeim eru ýmsir viðburðir og er á dagskránni til dæmis útibíó, ýmsar innsetningar, plötusnúðar og tónleikar.
Mest lesið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Bylgjulestin fer norður á morgun Lífið samstarf Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira