Hafa gaman af spuna og líka gömlum sálmum Baldvin Þormóðsson skrifar 25. júlí 2014 18:30 Félagarnir ákveða rosa lítið hvernig þeir ætla að gera hlutina, þeir bara gerast. mynd/aðsend „
Þetta verður svolítið blönduð efnisskrá,“ segir organistinn Eyþór Ingi Jónsson en hann kemur fram ásamt tenórnum Jóni Þorsteinssyni á síðustu Sumartónleikum sumarsins í Akureyrarkirkju. Þeir félagar munu flytja íslenska sálma og söngverk eftir J.S. Bach og G.F. Händel. „Síðan endum við þetta á því sem við höfum oft best gert áður og leikum okkur með gamla íslenska sálma,“ segir Eyþór Ingi sem hefur alltaf haft gaman af spuna í tónlist. „Við ákveðum rosa lítið hvernig við ætlum að gera hlutina, þeir bara gerast,“ segir hann og hlær en tónlistarmennirnir tveir eru ekki óvanir því að koma fram saman. „Það hefur alltaf gengið rosalega vel, rosalega góð aðsókn alltaf.“ Eyþór Ingi er fæddur og uppalinn í Dalasýslu þar sem hann hóf tónlistarmenntun sína sex ára gamall en auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn og stjórnar bæði Kór Akureyrarkirkju og Kammerkórnum Hymnodiu. Það má því með sanni segja að líf Eyþórs snúist um tónlist. „Maður vinnur við þetta alla daga og svo er þetta einmitt áhugamálið líka, það er ekkert öðruvísi,“ segir hann. Á tónleikunum í kvöld mega áhorfendur búast við að Eyþór og Jón taki upp á einhverju óvæntu en þeir notast mikið við sálmabók frá árinu 1945. „Við tökum mikið sálma sem hafa ekki verið sungnir seinustu áratugi, við blöndum þessu svolítið saman,“ segir Eyþór Ingi. „Við erum ekki mikið í að spila og syngja nýju sálmana, sem eru yngri en 100 ára, við erum meira í eldri gerðinni.“ Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju sunnudaginn 27. júlí klukkan 17.
Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira