„Minn helsti undirbúningur er að vera í símanum og áreita fólk“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 22. júlí 2014 09:30 Hér er Jón Gunnar ásamt Söndru Björgu Helgadóttur eftir hlaupið árið 2011. Mynd/úr einkasafni „
Ég safnaði nákvæmlega 1.246.500 krónum í fyrra og ofan á það lagði Velferðarsjóður barna 250.000 beint inn á Rjóðrið. Ég reikna með því að ég geti safnað enn meiru núna,“ segir athafnamaðurinn Jón Gunnar Geirdal. Hann ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu til styrktar Rjóðrinu, hvíldar- og æfingarheimili fyrir langveik börn, í ár eins og hann hefur gert síðustu ár. Í fyrra var hann sá einstaklingur sem safnaði mestum peningum í áheitasöfnun Íslandsbanka en fast á hæla hann fylgdi stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson. En hver ætli verði helsti keppinautur Jóns Gunnars í ár? „Það væri gaman ef það væri vinur minn Ólafur Darri. Við vorum hnífjafnir undir lokin í fyrra.“Jón Gunnar er í einu orði sagt óþolandi, að eigin sögn, þegar hann safnar áheitum fyrir hlaupið. „Nú er „operation óþolandi“ byrjað. Nú verður blásið í óþolandi herlúðra og fólk getur farið að fá kvíðahnút í magann,“ segir Jón Gunnar og bætir við að enginn sé óhultur þegar hann fer á fullt að safna áheitum. „Minn helsti undirbúningur er að vera í símanum og áreita fólk. Það er enginn látinn í friði þegar ég byrja að hringja og væla út peninga.“ Jón Gunnar hljóp tíu kílómetrana á rúmlega fjörutíu mínútum í fyrra en hefur best náð 38.54 mínútum. Hann hefur hlaupið lengra en það endaði með ósköpum. „Ég hef engan drifkraft í maraþonvegalengdir. Reykjavíkurmaraþonið er eitt skemmtilegasta hlaup ársins og ég vil ekki eyðileggja drifkraftinn með því að líða illa.“
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira