Lífið

Vonandi mætir sólin líka

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Rósa leggur mikið upp úr flippuðum og skemmtilegum búningum á tónleikum og er alltaf að þróa stíl sinn.
Rósa leggur mikið upp úr flippuðum og skemmtilegum búningum á tónleikum og er alltaf að þróa stíl sinn. Vísir/Anton
Mér finnst það mjög skemmtilegur máti til að tjá sig að klæða sig í eitthvað flippað eða skemmtilegt,“ segir Rósa Birgitta Ísfeld, söngkona Sometime sem er ein þeirra hljómsveita sem koma fram á tónleikunum Kexport Block Party í dag. „Það verður líka að vera skemmtilegt fyrir augað að vera á tónleikum. Ég er einmitt á fullu núna að púsla saman átfitti fyrir Kexport-tónleikana.“



Rósa segir þó tímann sem fari í að velja klæðnað á tónleika hafa minnkað með árunum. „Þegar ég var að byrja þá var ég oft í brjáluðu stressi vikuna fyrir tónleika að reyna að redda einhverju til að vera í, fá vini til að hjálpa mér að sauma og svona. Núna er ég komin með góðan grunn af skemmtilegum hlutum og búningum sem ég hef sankað að mér í gegnum árin svo þetta er orðið minna stress. Það má þó alls ekki nota sama búninginn of oft, þá hættir þetta að vera spennandi.“



Rósa er í sumarfríi eins og er en í haust taka við spennandi hlutir sem hana hefur lengi dreymt um að koma í framkvæmd. „Ég ætla að skella mér í flugnám,“ segir hún skælbrosandi. „Ég byrja á að læra einkaflugmanninn og svo tek ég vonandi atvinnuflugmanninn í kjölfarið. Það er gamall draumur sem ég er að láta rætast núna. Kannski verð ég í framtíðinni eins og Bruce Dickinson í Iron Maiden og flýg túrvélinni sjálf þegar ég fer á langa túra.“ Spurð hvað hafi valdið því að hana langaði að fljúga segir Rósa: „Ég er dálítill adrenalínfíkill og ég held að það sé mikið kikk að stjórna flugvél. Ég hlakka æðislega til.“



Sometime vinnur nú að sinni þriðju plötu og á tónleikunum í dag fá áheyrendur að heyra lög af henni. „Við erum nýbúin að gefa út „single“ og erum á fullu í stúdíói að vinna plötuna,“ útskýrir Rósa. Hún segist ekki vita nákvæmlega hvenær Sometime stígur á svið í dag en tónleikarnir standa frá klukkan tólf á hádegi til miðnættis og hljómsveitirnar tólf koma fram með klukkutíma millibili. „Ég held samt að við séum frekar snemma svo ég hvet áhorfendur til að vera ekkert að hangsa við að drífa sig niður í Kexport. Vonandi mætir sólin líka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.