Norræn strandmenning haldin hátíðleg í Ósló 17. júlí 2014 12:00 Ármann Einarsson, Eiríkur Stephensen, Snorri Guðvarðarson og Linda Guðmundsdóttir mynda hljómsveitina Húnarnir sem skemmtir á hátíðinni. Mynd/Einkasafn „
Það verður mjög margt um að vera, þarna verður kynnt hitt og þetta sem við kemur norrænni strandmenningu,“ segir Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins og formaður Norrænu strandmenningarsamtakanna, sem standa fyrir hinni árlegu Norrænu strandmenningarhátíð sem fram fer í Ósló þessa dagana. Tónlist, bátar, handverk, fyrirlestrar og fræðsla um íslenska strandmenningu er á meðal þess sem verður á dagskrá á hátíðinni. Hátíðin er nú haldin í fjórða sinn en fyrsta hátíðin var haldin á Húsavík árið 2011 og er Íslenska vitafélagið hugmyndasmiður og frumkvöðull hátíðanna. „Þema hátíðarinnar að þessu sinni er báturinn og því sendir Vitafélagið tvo báta á hátíðina, Húna II og Ríkey,“ segir Sigurbjörg. Gert er ráð fyrir hundruðum báta til Óslóar og er flotinn nú á siglingu inn Óslóarfjörð og kemur til hafnar í Ósló í dag, fimmtudag. Auk þessara tveggja báta verður kynning á íslenskri tónlist sem fjallar um strönd og haf í umsjá hljómsveitarinnar Húnanna. Fleiri Íslendingar standa fyrir ýmsum kynningum og mun Arndís Jóhannsdóttir kynna nýtingu og verkun á roði fyrr og nú og þá ætlar Þorvaldur Friðriksson, fréttamaður að halda fyrirlestur sem ber yfirskriftina Af hverju heitir norræni sjávarguðinn Ægir?Húni IISamtímis og norrænu strandmenningarfélögin kynna sinn menningararf og nýjungar innan strandmenningar halda Norðmenn upp á 200 ára afmæli norsku stjórnarskrárinnar sem og 700 ára afmæli borgarinnar. „Tilgangur með Norrænu strandmenningarhátíðinni er að vera vettvangur þar sem leikir og lærðir hittast, fræðast, miðla hver öðrum og mynda tengsl. Markmiðið er einnig að styrkja nýsköpun og menningu á strandsvæðum og koma henni á framfæri við almenning. Við viljum opna augu fólks fyrir mikilvægi þessa hluta vistkerfis jarðar og þeirri ógn sem að því steðjar. Þannig verður stutt við áherslur í norrænum umhverfismálum og strandmenningu og hún kynnt fyrir umheiminum. Þetta eflir samstarf, samvinnu og nýsköpun í dreifðari byggðum landanna. Við stöndum vörð um hreint haf og virðingu fyrir þeirri menningararfleifð sem tengist ströndum hvers lands,“ segir Sigurbjörg.Vitafélagið sendir bátana Húna II og Ríkey á norrænu strandmenningarhátíðina í Ósló. Bátasmiðirnir Birkir Þór Guðmundsson og Guðmundur Birkisson gerðu upp Ríkey, en báturinn var upphaflega smíðaður árið 1920.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira