Lífið

Brjáluð yfir að græða ekki milljónir

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Jóna Kristín og Brynjar voru að vonum ánægð með að Þjóðverjar hrepptu heimsmeistaratitilinn.
Jóna Kristín og Brynjar voru að vonum ánægð með að Þjóðverjar hrepptu heimsmeistaratitilinn. MYND/Úr einkasafni
Jóna Kristín Hauksdóttir reyndist sannspá þegar hún tippaði á fjögur efstu liðin í HM, Þýskaland, Argentínu, Holland og Brasilíu, í réttri röð þann 12. júní. Jóna er framherji í meistaraflokki Breiðabliks og hefur talsverða þekkingu á fótbolta en segist þó ekki vera neinn Nostradamus spámaður.

„Ég sé bara eftir að hafa ekki tippað á úrslitin í veðbanka. Ég tippaði á þetta í ómerkilegum fjölskylduleik og það sorglega í því er að við lögðum ekkert girnilegt undir,“ segir Jóna og segist ætla næst í veðbankann. „Ég er brjáluð yfir þessu. Ég hefði getað grætt fullt af peningum.“

Jóna og kærasti hennar, fótboltakappinn Brynjar Benediktsson í Haukum, eru gallharðir stuðningsmenn Þýskalands. „Kærastinn minn bjó í Þýskalandi og er áreiðanlega mesti aðdáandi liðsins á Íslandi. Hann er meira að segja búinn að hengja Þýskalandstreyjuna upp í stofunni heima.“

Aðspurð segist Jóna hafa verið dugleg að fylgjast með HM. „Holland var með skemmtilegt lið, en ég er klárlega ánægð með þessi úrslit og þýska liðið átti þetta fyllilega skilið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.