Kortlagði Ítalíu í fæðingarorlofinu Kristjana Arnarsdóttir skrifar 11. júlí 2014 11:00 Kjartan er með ítalska menningu og matargerð á kristaltæru en ætlar að bæta ítölskukunnáttuna. fréttablaðið/arnþór „
Ég fór bara að skrifa um hvert hérað þegar ég fór í fæðingarorlofið en vissi í raun og veru ekkert hvað ég ætlaði að gera við þetta. Ég ákvað svo að stofna heimasíðu til að halda utan um öll þessi skrif,“ segir fyrrverandi knattspyrnukappinn Kjartan Sturluson, sem nýverið stofnaði vefsíðuna Miniitalia.is en þar fjallar hann um Ítalíu í allri sinni mynd. Kjartan hefur haft einlægan áhuga á Ítalíu allt frá átta ára aldri þegar hann ferðaðist um landið með fjölskyldunni. „Ég fór svo sem skiptinemi frá Háskóla Íslands í skóla í Mílanó og síðar í mastersnám við sama skóla. Þegar maður býr í landinu dettur maður inn í ítölsku lifnaðarhættina. Svo er maturinn og vínið auðvitað æðislegt.“Kjartan Sturluson í leik með Val.Mynd/VilhelmEftir að mastersnáminu lauk fór Kjartan aftur heim til Íslands en bróðir hans flutti inn í íbúðina úti. „Þegar keppnistímabilinu hér heima lauk á haustin þá dreif ég mig alltaf aftur út og var þar alltaf lengi í senn,“ segir Kjartan, en hann stóð lengi vel á milli stanganna hjá Fylki og Val, ásamt því að leika með íslenska landsliðinu. Kjartan talar þó litla ítölsku þrátt fyrir langa dvöl ytra. „Ég var orðinn ágætur á sínum tíma en er búinn að týna þessu. Það er hálf glatað því ég er með allt annað varðandi Ítalíu á hreinu. Ég verð eiginlega að kippa þessu í liðinn,“ segir Kjartan og hlær.
Mest lesið Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Lífið Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til Lífið Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Menning Aron Mola ástfanginn í bíó Lífið „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Lífið „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Lífið Brooklyn Beckham og Nicola Peltz héldu brúðkaup ársins um helgina Lífið Valentino er allur Tíska og hönnun Fagna tíu árum af ást Lífið Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Lífið Fleiri fréttir Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Fagna tíu árum af ást Þekkja Kringlugestir borgarstjórann? Aron Mola ástfanginn í bíó Krútteyjurnar Ischia og Sikiley: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Skautafjör á Laugarvatni í dag Fréttatía vikunnar: Bruni, Grænland og handbolti Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Svona heldur Rakel sér unglegri Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Sólveig Anna greinir woke-ið Bergþór og Laufey selja slotið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Rosalia komin með skvísu upp á arminn „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Sjá meira