Legó inn fyrir Forsetann Baldvin Þormóðsson skrifar 10. júlí 2014 08:30 Hljómsveitin Gus Gus hefur átt farsælan feril síðan 1995. mynd/aðsend
Einhverjar hræringar eru í hljómsveitinni Gus Gus sem er þessa dagana að undirbúa tónleikaferðalag með haustinu til að fylgja eftir hinni nýútkomnu plötu Mexíkó. Einn af forsprökkum sveitarinnar Stephan Stephensen, einnig þekktur sem President Bongo, fer ekki með í ferðalagið. „Hann ætlar að taka sér frí að minnsta kosti fram að jólum,“ segir Þorsteinn Stephensen, umboðsmaður Gus Gus og bróðir Stephans. „Við erum að fara í mjög þéttan túr um öll Evrópulöndin, langt ferðalag um Rússland, Pólland og síðan Bandaríkin og Mexíkó.“ Þetta er fyrsta tónleikaferðalag Gus Gus sem Stephan tekur ekki þátt í, en hann er einn af upprunalegum meðlimum sveitarinnar sem hóf störf árið 1995. „Hann vildi bara taka sér pásu held ég,“ segir umboðsmaðurinn. „Sem er náttúrulega allt í góðu þar sem við fengum gamlan Gus Gus-meðlim til þess að stökkva inn í fyrir Stebba.“ Maggi Legó kemur sterkur inn í stað Stephan.mynd/aðsendÞað mun vera tónlistarmaðurinn Magnús Guðmundsson, Maggi Legó, sem fyllir upp í skarðið í tónleikaferðalaginu, en hann er einnig upprunalegur meðlimur sveitarinnar en hefur ekki verið með síðan árið 2007. „Hann kann þetta allt saman og það er bara gaman að þessu en síðan hugsa ég að Stebbi komi aftur inn fyrir áramót,“ segir Þorsteinn. Ekki er vitað nákvæmlega hvað Stephan ætlar að taka sér fyrir hendur í haust. „Hann er náttúrulega með fjalla- og siglingabakteríu á háu stigi,“ segir bróðir hans og hlær. „Ég held að hann langi til þess að sýna því meiri áhuga.“ Hvorki Stephan né Maggi vildu tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira