Lífið

Kubbkeppni í anda HM

Krista Hall er einn skipuleggjenda keppninnar, en hún er mikil áhugamanneskja um kubb.
Krista Hall er einn skipuleggjenda keppninnar, en hún er mikil áhugamanneskja um kubb. MYND/Úr einkasafni
Kubbkeppni fer fram á Vitatorgi í dag.

Einn skipuleggjenda keppninnar er grafíski hönnuðurinn Krista Hall, en hún ásamt vinkonu sinni og vöruhönnuðinum Guðrúnu Harðardóttir er með Vitatorg í fóstri í sumar.

„Þetta er fyrsti viðburðurinn,“ segir Krista en Vitatorg er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu á vegum Reykjavíkurborgar þar sem nokkur svæði í miðborginni verða gædd lífi í júlí og ágúst.

Krista og Guðrún segja að kubbkeppnin sé aðeins fyrsti viðburðurinn af mörgum.

„Þetta verður mega skemmtileg keppni. Það verður keppt á tveimur kubbvöllum í útsláttarkeppni í anda HM,“ útskýrir hún.

„Svo verða vegleg verðlaun í boði fyrir sigurliðið,“ segir Krista og hlær.

„Kubbur er náttúrulega mjög vaxandi sport hér á landi. Við vinirnir erum gríðarlega miklir kubbáhugamenn og tökum reglulega kubbmót á Klambratúni. Nú viljum við færa út kvíarnar.“

Í hverju liði eru tveir til fjórir.

Lið skrái sig til leiks á vitatorg2014@gmail.com fyrir kl. 15.00 á keppnisdag.

Þátttökugjald er ekkert.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.