Viðskipti innlent

Í samningaviðræðum við Turner, Dreamworks og Warner Brothers

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Jón Axel Ólafsson eigandi Eddu útgáfu ásamt Tinnu Proppé útgáfustjóra og Marissu Madill frá Smiths Publishing á stórri bókasýningu í Bandaríkjunum í maí.
Jón Axel Ólafsson eigandi Eddu útgáfu ásamt Tinnu Proppé útgáfustjóra og Marissu Madill frá Smiths Publishing á stórri bókasýningu í Bandaríkjunum í maí. mynd/úr einkasafni
Systurfyrirtæki Eddu útgáfu, Edda eignarhaldsfélag ehf. (Edda USA), undirritaði í nóvember samning við Disney í Bandaríkjunum sem kveður á um leyfi til framleiðslu, dreifingar og útgáfu á Disney-bókum í Kanada og Bandaríkjunum. Þá eru fleiri stór verkefni í pípunum sem Jón Axel Ólafsson eigandi Eddu útgáfu og framkvæmdastjóri Eddu USA segir að verið sé að skoða alvarlega.

„Fyrir fimm árum þegar ég tók yfir rekstur Eddu útgáfu þá fórum við strax að skoða hvaða tækifæri væru til staðar. Að mínu mati snerist það fyrst og fremst um vörumerkið Disney þar sem Edda útgáfa hefur náttúrulega verið í samstarfi við Disney í yfir 30 ár. Ég vildi þannig vinna með það vörumerki og leita tækifæra bæði innanlands og erlendis á stærri mörkuðum,“ segir Jón Axel um upphafið á þessu ævintýri.

Jón Axel Ólafsson
Ekki margir sem fá útgáfuleyfi fyrir Disney

Hann segir þau hjá Eddu útgáfu hafa strax farið að rækta tengslin við Disney. „Árið 2010 framleiddum við Disney-bók frá grunni sem var matreiðslubók. Vinsældir hennar vöktu athygli erlendis og komu okkur á kortið sem alvöru framleiðanda.“ Jón segir ferlið í kringum útgáfusamninginn í Norður-Ameríku hafa verið langt, heil þrjú ár, og verið ákaflega umfangsmikið og flókið.

„Það eru ekki margir sem fá útgáfuleyfi fyrir Disney en það gefur okkur leyfi til að gefa út bækur í prentuðu og rafrænu formi í Norður-Ameríku. En síðan eru þarna líka tækifæri til að vinna með Disney á öðrum sviðum efnis og í þróun smáforrita fyrir síma og spjaldtölvur og opnar einnig á framleiðslu smávöru sem tengist þeim verkefnum sem við erum að vinna í hverju sinni. Á sama tíma og við framleiðum vöruna fyrir þennan markað opnar það á Evrópumarkað fyrir sömu vörur. Um það snýst þessi samningur.“

Fyrsta verkefnið sem Edda hefur unnið undir merkjum Disney er komið út þar vestra og sem stendur eru tíu titlar til viðbótar í farvatninu sem útgáfan ætlar að koma út í ár og á því næsta. Fyrsta bókin heitir Go Green! og fjallar um grænan lífsstíl og Jón segir að með henni hafi verið brotið blað í sögu Disney sem hefur ekkert snert á þessum málaflokki áður.

„Við notuðum fyrstu bókina til að komast yfir allar þær hindranir sem þarf að takast á við til að komast inn á þennan markað. Til dæmis að finna dreifingaraðila, markaðsfyrirtæki, samskiptamiðlafyrirtæki og annað sem til þarf. Dreifingaraðilinn þarf að geta séð um svona mikla dreifingu en vörur okkar er að finna í öllum helstu verslunum í Bandaríkjunum, bæði bókaverslunum og sérvöruverslunum, en einnig á netinu á til að mynda japönskum, indverskum, finnskum og þýskum markaði.“ Hann segir Go Green! hafa fengið frábærar viðtökur, fína dóma og mikla umræðu á internetinu. Jón segir það þó vandmeðfarið að vera leyfishafi hjá Disney sem útheimti bæði tíma og mikla peninga. „Disney reynir að hrista þá af sér sem reyna að olnboga sig þarna í gegn án þess að standa undir því.“

Íslenskt hungur

Edda USA er eini útgefandinn í Bandaríkjunum sem sinnir þessari nokkurs konar lífsstílsútgáfu. „Innan hennar eru matreiðslubækur, fræðslubækur, fjölskyldubækur og bækur um hreyfingu og almennan lífsstíl,“ segir Jón.

En hvernig kom það til að Disney ákvað að velja lítið fyrirtæki frá Íslandi til að sjá um þessa útgáfu fyrir sig? „Við vorum einfaldlega með vöru sem var vel unnin og náði í gegn. Þá var líka litið til þess að við áttum okkur langa sögu með Disney og að endingu höfðum við bara það mikinn áhuga á að gera þetta og lögðum okkur fram við að ná þessum samningum. Öll okkar vinna í kringum og við undirbúning hans lagði grunninn að því að hann náði í gegn. Kannski var það bara þrjóska, þolinmæði og íslenskt hungur sem gerði þetta að verkum,“ segir Jón á léttu nótunum.

Á sömu kennitölu

Edda eignarhaldsfélag er full fjármagnað að minnsta kosti fyrir næstu tvö til þrjú árin en þegar Jón Axel og fleiri keyptu Eddu útgáfu árið 2009 var félagið mjög illa statt.

Rekstrarárið 2008 tapaði fyrirtækið 144 milljónum króna, skuldir námu 401 milljón og eigið fé var neikvætt um 300 milljónir. Ári síðar höfðu skuldirnar lækkað um 200 milljónir og eigið fé var orðið neikvætt um 99 milljónir. Einhverjar skuldir höfðu verið afskrifaðar og þá fyrst og fremst af erlendum aðilum að sögn Jóns.

„Fyrsta verkefnið þegar við komum inn var að taka til. Síðan þá höfum við verið að strúktúra reksturinn upp á nýtt til að ná tökum á honum. Það er ekki auðvelt að reka fyrirtæki á Íslandi, óhagræðið er gríðarlega mikið sem kemur fram í háu vöruverði. Þá eru möguleikar til vaxtar litlir. Íslensk bókaútgáfa er þannig gríðarlega mikið happdrætti þar sem útgáfan tekur alla áhættuna, það er mjög óhagstætt að prenta í litlu upplagi,“ segir Jón. Hann segir útgáfur í raun og veru ekki hagnast á útgáfunni fyrr en eftir 3.000 seld eintök en oftast seljist í kringum 1.000 til 2.000 eintök af bókum hérlendis. „Það er þumalputtaregla að það er tap af átta af hverjum tíu útgefnum bókum og þannig bara hagnaður af tveimur. Þetta er í raun og veru bara tóm della að standa í þessu.“ Jón segir íslenskar bókaútgáfur í flestum tilfellum þannig reknar af hugsjón en ekki arðsemi. „Sérstaða Eddu útgáfu liggur fyrst og fremst í rekstri áskriftaeininga sem gefa jafnt tekjuflæði og framleiðslu Disney-bóka.“

Jón Axel segir Eddu nú vera fjárhagslega á svipuðu róli og árið 2012, þar sem eigið fé var neikvætt um 10 milljónir og fyrirtækið skuldaði 133 milljónir króna. Eignir félagsins námu þá 123 milljónum króna. „Það er búin að vera mikil fjárfesting í því að hafa varið síðastliðnum þremur árum í að ná þessum samningi við Disney. Það hefur kostað mikla peninga sem eru kannski ekki farnir að skila sér enn þá en félagið er miklu betur hæft til rekstrar í dag en þegar við keyptum árið 2009. Reksturinn hefur verið endurskipulagður og þótt það sé auðvitað stöðugt nudd að takast á við það að koma félaginu í jákvæða eiginfjárstöðu þá gerum við ráð fyrir að það muni takast á þessu eða næsta ári.“

Jón segir þá hafa ákveðið að fara þá leið að skipta ekki um kennitölu í hruninu heldur takast á við það að rífa það upp. „Við réðum nýjan framkvæmdastjóra, sterkan rekstrarmann sem hefur verið að vinna í því að skapa félaginu framtíðarrekstrargrundvöll. Minni kaupgeta í samfélaginu eftir hrun gerir þetta auðvitað erfiðara. Okkar verðmætasta eign er áskriftarhópurinn sem hefur verið að styrkjast síðastliðna mánuði eftir mjög erfið ár á undan. Við sjáum bara fram á bjartari tíma með auknum hagvexti í samfélagi sem hefur meira á milli handanna.“

Go green! Fyrsta bók Eddu fyrir Disney heitir Go green og er nokkurs konar kennslubók í grænum fræðum.
Disney opnar glugga

Sögunni af ævintýrinu um starfsemi Eddu USA er ekki lokið því í burðarliðnum eru samningaviðræður við fleiri bandarísk fyrirtæki. „Dreamworks, Warner Brothers og Turner Broadcasting hafa öll sett sig í samband við okkur og boðið okkur að gera við þá samninga sambærilega þeim sem við gerðum við Disney. Við erum núna að skoða hvort við viljum og ráðum við meira í bili.“ Sala á barnabókum í Bandaríkjunum er í vexti og hefur aukist um sjö prósent á einu ári og Jón segir að fram undan séu mjög spennandi tímar.

„Það rennir stoðum undir það að bækur eru ekki að gefa eftir og samstarf með þessum fyrirtækjum ásamt Disney gefur okkur náttúrulega margvísleg tækifæri til að framleiða vörur sem hafa möguleika á að seljast vel. Nærtækustu dæmin eru Shrek-myndir Dreamworks en þríleikurinn er meðal söluhæstu teiknimynda allra tíma. Warner Brothers er síðan með Batman og Superman og Disney með bæði Marvel og Star Wars þannig að það gefur augaleið að það eru gríðarleg tækifæri þarna sem standa okkur til boða. Það er hins vegar mikilvægt að stíga varlega til jarðar þar sem öll svona starfsemi kostar mikla peninga. En það er ljóst að gluggar eru að opnast í framhaldi af þessum samningi við Disney,“ segir Jón Axel að lokum.


Tengdar fréttir

Býr til hárgreiðslubók fyrir Disney

Theódóra Mjöll Skúladóttir Jack vinnur nú að nýrri hárgreiðslubók þar sem hún tekur fyrir ellefu Disney-prinsessur og gerir mismunandi hárgreiðslur fyrir hverja og eina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×