Telja óheimilt að dreifa ösku við Þingvallavatn Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. febrúar 2014 08:00 Lög banna að ösku látins fólks sé dreift yfir stöðuvötn, segir lögmaður Þingvallanefndar. Fréttablaðið/GVA
Lögmaður Þingvallanefndar telur óheimilt að verða við ósk um að dreifa ösku látins manns við Þingvallavatn. Bón um að öskunni yrði dreift í þjóðgarðinum barst innanríkisráðuneytinu sem óskaði eftir áliti Þingvallanefndar á málinu. Í minnisblaði lögmanns nefndarinnar er vísað til löggjafar varðandi dreifingu ösku látinna manna. Óheimilt sé að dreifa ösku látinna manna yfir byggð eða stöðuvötn. Breyta þyrfti lögum áður áður slíkt yrði heimilað. Í samtölum við meðlimi Þingvallanefndar kom fram að áður hafi verið leitað eftir því að fá að dreifa ösku erlendra manna á Þingvöllum sem þeir álíti heilagan stað. Í því tilfelli sem hér um ræðir er hins vegar um að tefla ösku látins Íslendings. „Því má bæta við að frá 1. febrúar hefur sýslumannsembættinu á Siglufirði verið falið að fjalla um umsóknir um dreifingu ösku látinna utan kirkjugarðs,“ segir í svari innanríkisráðuneytisins til Fréttablaðsins.
Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Sjá meira