Einn dáðasti leikari sinnar kynslóðar 4. febrúar 2014 08:00 Hoffman lék titilhlutverkið í Capote, og hlaut Óskarsverðlaunin fyrir besta leik í aðalhlutverki í þeirri mynd.
Fregnir herma að Philip Seymour Hoffman hafi látist úr of stórum skammti eiturlyfja á sunnudaginn, en rannsakendur á vettvangi fundu sprautu í handlegg hans, og umslag með efni sem virtist vera heróín. Hoffman hafði um árabil átt við fíknivanda að etja. Árið 2006 sagði hann í viðtali í fréttaskýringaþættinum 60 minutes að hann hefði hætt að neyta áfengis og fíkniefna mörgum árum áður, eða þegar hann var 22 ára gamall. Á síðasta ári fór leikarinn góðkunni þó í meðferð í um það bil tíu daga eftir að hann ánetjaðist lyfseðilsskyldum lyfjum sem leiddi síðar til þess að hann fór aftur að nota heróín. Philip Seymour Hoffman hefur unnið leiksigra á ferlinum. Hann vann mikið með leikstjóranum, handritshöfundinum og framleiðandanum Paul Thomas Anderson í myndum á borð við The Master, Magnolia og Boogie Nights, hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn í Capote, mynd byggð á ævi rithöfundarins Truman Capote og vakti eftirtekt í hlutverki sínu í kvikmyndinni Happiness, í leikstjórn Todd Solondz, þar sem hann lék hinn pervisna og einkar ógeðfellda Allen. Þá þótti hann skara fram úr í hlutverki CIA fulltrúans Gust Avrakotos í kvikmyndinni The Talented Mr. Ripley, og svo mætti lengi telja. Þannig bætist Hoffman í hóp þeirra hæfileikaríku listamanna sem deyja fyrir aldur fram.Úr kvikmyndinni The Master. Hoffman hlaut þrjár tilnefningar til Óskarsverðlaunanna fyrir besta leik í aukahlutverki; fyrir kvikmyndirnar Charlie Wilsons‘s War (2007), Doubt (2008) og The Master (2012).Hoffman var í sambandi með búningahönnuðinum Mimi O‘Donnell síðustu fimmtán ár ævi sinnar. Þau kynntust þegar þau unnu að leikverkinu In Arabia We‘d All be Kings sem Hoffman leikstýrði, árið 1999. Þau eignuðust son, Cooper, árið 2003 og tvær dætur, Tallulah, fædd 2006 og Willa, fædd 2008.Í minningargrein í New York Times var Hoffman lýst sem þybbnum, þreytulegum manni með ljóst, og gjarnan ógreitt hár. Í minningargreininni sagði enn fremur að Hoffman væri þekktur fyrir að klæðast krumpuðum fötum sem menn tengdu frekar við atvinnulausan leikara heldur en stjörnu. Hann breytti gjarnan útliti sínu fyrir hlutverk sem hann tók að sér, breytti um hárlit og þyngdi sig eða létti. Hann var þekktur fyrir að helga sig hlutverkum sínum algjörlega, stundum óþarflega mikið.Hoffman lék á móti Chris O‘Donnell og Al Pacino í myndinni.Hoffman lék í myndum á borð við Scent of a Woman (1992),Twister (1996), Boogie Nights (1997), The Big Lebowski (1998), Patch Adams (1998), Magnolia (1999), The Talented Mr. Ripley (1999), Almost Famous (2000), Red Dragon (2002), 25th Hour (2002), Punch-Drunk Love (2002) og Cold Mountain (2003) 2005 lék Hoffman titilhlutverkið í Capote. Aðrar myndir sem hlutu lof gagnrýnenda voru Owning Mahowny (2003), Before the Devil Knows You‘re Dead (2007), Charlie Wilsons‘s War (2007),The Savages (2007), Synecdoche, New York (2008), Doubt (2008), Moneyball (2011), The Ides of March (2011) og The Master (2012). Árið 2010, leikstýrði hann sinni fyrstu kvikmynd, Jack Goes Boating.Philip Seymour Hoffman lék hlutverk Allens í kvikmyndinni Happiness í leikstjórn Todd Solondz.Philip Seymour Hoffman var dáður í leikhúsi, bæði sem leikari og leikstjóri, en hann kom fram í og leikstýrði mörgum verkum á ferlinum. Hann hlaut þrjár tilnefningar til Tony-verðlauna, tvær fyrir besta leik í aðalhlutverki í verkunum True West (2000) og Death of a Salesman (2012), og eina fyrir besta leik í aukahlutverki í Long Day‘s Journey into Night (2003).
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Fleiri fréttir Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Sjá meira