Nú hafa 9,84 prósent Íslendinga náð í sinn skammt af Auroracoin, nýrri rafmynt sem fór í dreifingu til allra Íslendinga þann 25. mars síðastliðinn. Verð gjaldmiðilsins hefur hríðfallið í verði síðan en höfundur myntarinnar, sem gengur undir dulnefninu Baldur Friggjar Óðinsson, segir að verð Auroracoin fyrir dreifinguna hafi verið of hátt.
„Ég get skilið að fólk heldur að Auroracoin gangi ekki vel,“ segir Baldur við International Buisness Times. Hann bendir þó á að verðið fyrir dreifinguna hafi verið orðið allt of hátt og hann hafi reynt að vara fólk við því á sínum tíma.
„Þetta háa verð var líklega það versta sem gat gerst, því það byggði upp of mikla eftirvæntingu og hafði þær afleiðingar að margir Íslendingar skiptu út Auroracoin fyrir fíat gjaldmiðil."
Þá segir Baldur að hann hafi áhyggjur af því að ef hann notaðist ekki við dulnefni gæti hann lent í vandræðum.
„Mér hefur verið hótað lögsókn, af fólki eins og Frosta Sigurjónssyni, þingmanni Framsóknarflokksins. Ég tel þetta vera innihaldslausar hótanir, án lagalegs grunns, en ég vil ekki taka áhættuna.“
Í greininni er bent á frétt á vef Dogeconomist þar sem segir að margir hafi sótt Aur með öðrum kennitölum en sínum eigin. Baldur segir það hinsvegar ekki vera rétt.
„Ég skil ekki hvers vegna svona greinar eru skrifaðar án almennilegra rannsókna. Það eina sem höfundurinn hefur fyrir sér, eru sínar eigin getgátur. Ég sé hver sækir skammtinn, hvaðan og hvenær.“
Hann viðurkennir þó að eitthvað hafi verið um svindl, vegna Facebook síða sem hafi verið tilbúnar.

Hann bendir á að einn einstaklingur hafi jafnvel keypt sér bíl með Auroracoin.
„Hægt og örugglega mun samfélagið á Íslandi byggja upp nauðsynleg innviði svo Auroracoin geti blómstrað,“ segir Baldur,