Karen: Við erum mikið betri en þetta lið Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 3. desember 2014 21:26 Karen hefur skorað 34 mörk í 13 leikjum í undankeppninni. vísir/ernir „
Mér fannst þetta mjög skemmtilegur leikur. Í síðasta leik náðum við ekki að nýta vörnina með hraðaupphlaupum en við náðum því í dag og allir skiluðu sínu,“ sagði Karen Knútsdóttir leikstjórnandi Íslands sem fór mikinn þegar Ísland lagði Makedóníu í kvöld. „Við ætluðum að klára þetta á heimavelli. Það er erfitt að fara til Makedóníu. Þú veist aldrei á hverju þú átt von á þar. Við komum mjög vel stemmdar og við höfum verið mjög einbeittar á allt þetta verkefni. Þetta var framhald af því,“ sagði fyrirliðinn sem gat auðveldlega útskýrt vandræðaganginn á vörn Íslands í fyrri hálfleik. „Við vorum kannski farnar að vilja hlaupa upp völlinn og skora nokkur mörk og gleymdum okkur aðeins í vörninni. Það má auðvitað ekki gerast. Það er dýrt á móti betri liðum en við gátum leyft okkur það í kvöld. „Við ákváðum að byrja seinni hálfleikinn af krafti. Við vorum sáttar með fyrir hálfleikinn en ekki alveg nógu sáttar og ákváðum að bæta það upp á upphafsmínútum seinni hálfleiks sem við náðum að gera. „Við erum mikið betri en þetta lið og náðum að sýna það í kvöld. „Við vinnum gríðarlega vel fyrir hverja aðra og það er ekki bara sú sem skorar mörkin sem á hrós skilið,“ sagði hógvær Karen sem var allt í öllu í góðum sóknarleik Íslands. „Við erum í forkeppni núna og eigum að vera betri en þessi lið. Við eigum heima í undankeppninni og erum búnar að sýna það. Nú er bara að bíða og sjá hvaða þjóð við fáum næst,“ sagði Karen en það kemur í ljós eftir Evrópumeistaramótið sem hefst síðar í mánuðinum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira