Standa fyrir átta daga "andlegu ferðalagi“ á Balí 8. ágúst 2014 14:00 Sigrún Lilja Guðjónsdóttir
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við Gyðju Collection, og þerapistinn Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir bjóða upp á átta daga ferð og námskeið í náttúruparadísinni á eyjunni Balí. Námskeiðið, sem ber heitið Empower Women: Spiritual journey, inspiring and transforming retreat in Bali, stendur yfir dagana 21. til 28. október næstkomandi. Að sögn Sigrúnar Lilju er námskeiðið með það að markmiði að konur byggi upp sjálfstraust sitt, setji sér markmið, fullmóti drauma sína eða viðskiptahugmyndir og fái öll þau tæki og tól sem þarf til að hrinda þeim í framkvæmd. „Þetta er einstakt andlegt ferðalag þar sem konur munu kynnast sjálfum sér, finna sig og læra að fylgja hjarta sínu og elska sig til fulls,“ segir Sigrún Lilja. „Við munum byrja hvern morgun á hugleiðslu og „Happy-yoga“ í sólarupprás áður en farið er í dásamlegan morgunverð að hætti Balí og fyrirlestrarnir hefjast. Að auki verða einkatímar, spa og fleira spennandi í boði.“Guðbjörg Ósk FriðriksdóttirSigrún Lilja sló í gegn með fylgihluta- og ilmvatnalínu sinni Gyðja Collection, og hefur undanfarin tvö ár haldið námskeiðið Konur til Athafna og Guðbjörg Ósk hefur haldið námskeið á borð við Lærðu að elska þig ásamt því að kenna jóga í mörg ár. Sigrún Lilja segir að svipaðar áherslur um andleg málefni og aðstoð við uppbyggingu kynsystra sinna hafi leitt þær saman og því hafa þær ákveðið að sameina námskeiðin tvö. „Eftir að við fórum að ræða saman um að sameina krafta okkar í eina heilsteypta uppbyggingarferð á Balí varð ekki aftur snúið,“ segir Sigrún Lilja. „Það passar fullkomlega saman að sameina tvö einstök námskeið sem eru bæði til þess fallin að byggja konur upp og hvetja þær til að láta til sín taka. Þetta verður einstakt „retreat“ sem er nú að verða að veruleika.“ „Á námskeiðinu fer ég vel yfir hvernig konur megi koma draumums ínum eða viðskiptahugmyndum í framkvæmd. Kenni allt um erlenda framleiðslu, dreifingu og sölu, markaðssetningu og svo miðla ég minni reynslu sem ég hef lært á leið minni í uppbyggingingu á Gyðju. Að auki fer ég djúpt í persónulega markmiðasetningu og markvissar leiðir til að byggja upp sjálfstraust hverrar konu.“ Þegar Guðbjörg Ósk er spurð nánar út í aðferðafræðina að baki Lærðu að elska sjálfan þig sem hún kemur til með að kenna konunum á Balí, segist hún vita að allir geta lifað draumalífinu sínu. „Lærðu að elska sjálfan þig er persónuleg þjálfun þar sem ég kenni aðferðir sem auka sjálfstraust og hugrekki. Það leiðir svo að meiri hamingju og eykur skilning á því hvaða eiginleika fólk hefur, tilgang og ástríður. Þegar þú ferð að standa með sjálfri þér sérðu að það hefur jákvæð áhrif á alla í kringum þig,“ segir Guðbjörg Ósk. Skráning á námskeiðið er nú hafin og sjá má nánari upplýsingar um dagskrá, hótel og fleira á Facebook síðu námskeiðsins. Að sögn Sigrúnar Lilju er takmarkað sætaframboð til að gera reynsluna sem persónulegasta.
Mest lesið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, vann fjórfalt, meistaranám og flott starf Áskorun 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Crawford minnist sonarins Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Sjá meira