Þjóðernisöfgar, fávísi og stríð Þröstur Ólafsson skrifar 8. desember 2014 00:00 Árið sem er að líða er mikið afmælisár. Við minnumst upphafs þriggja stríða. Frá ófriði Dana og Prússa árið 1864 eru liðin 150 ár. Heil öld er síðan heimsstyrjöldin fyrri hófst 1914, og frá upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar eru liðin 75 ár. Sjónvarpið sýnir nú danskan sjónvarpsþátt, sem fjallar um þessi afdrifaríku átök 1864. Þar er dregið fram hvernig fávísir, þröngsýnir og vitgrannir stjórnmálamenn kyntu undir blindum ofmetnaði, dönskum þjóðernisyfirburðum og megnri vanþóknun gagnvart útlendingum, ekki hvað síst nágrönnunum í suðri. Svo staurblindir voru þeir af þjóðrembuofsa að frekar létu þeir slátra lunganum úr dönskum ungmennum á vígvellinum en viðurkenna dapurlegar staðreyndir. Málamiðlanir jafngiltu svikum. Kenjar og duttlungar réðu ferð. Þeir töpuðu því stórt. Afstaða annarra evrópskra stjórnmálamanna sunnar í álfunni hálfri öld síðar einkenndist af sama hugaræði ofmetnaðar og eigin þjóðlegra yfirburða. Við klárum þetta á hálfu ári sögðu vímuvilltir Þjóðverjar 1914. Slátrunin, grimmdin og glæpaverkin voru eftir því. Hrikalegar afleiðingar fyrra heimsstríðsins mótuðu sögu álfunnar út öldina. Tuttugu og fimm árum seinna hófst enn einn hildarleikurinn upprunninn úr ofstopafullri þjóðernishyggju, af áður óþekktum ofsa. Nú var ekki bara ráðist á fyrirlitlega útlendinga, heldur gengið á milli bols og höfuðs á samborgurum, sem ekki höfðu réttan þjóðlegan uppruna, jafnvel langt fram í ættir. Atburðarás, endalok og afleiðingar þessara þjóðamorða þekkjum við of vel. Mannlegar hörmungar eru framdar af vitskertum leiðtogum.Bölvun þjóðrembunnar Ein meginkveikjan að þessum stríðum var sú sama, þótt blæbrigðin væru ólík. Öll áttu þau það sameiginlegt að kvikna og nærast af þjóðernishyggju, en hún byggir á þeirri tilfinningu að einhver ákveðinn hópur fólks sé útvalinn, sérstakur og æðri öðrum. Það er því örstutt skref á milli þess að ofmeta eigin þjóð og málstað hennar og að fyrirlíta aðrar þjóðir. Blindur þjóðrembingur og ranghugmyndir um völd, stöðu og getu, leiddu og leiða enn heilar þjóðir á villigötur, jafnvel í glötun. Engar samfélagskenningar eða „ismar“ eru eins varasamar til pólitísks brúks, því þjóðernishyggjan grundvallast á tilfinningu, ekki rökhyggju. Auðvelt er að vinna henni fylgi. Einstaklingum, hópum eða þjóðum finnst þau vera sterkari og öruggari, ef þeim er sagt að þau skari fram úr öðrum. Erfitt getur því reynst að halda þjóðhyggjunni í skefjum, því auðvelt er að spila á þessar tilfinningar. Á tímum umróts, breytinga á lífskjörum og óvissu er skírskotun til þjóðlegs ágætis og yfirburða vel þegin. Þess vegna komust og komast þjóðrembumenn svo auðveldlega til valda. Því betur voru og eru líka til í öllum löndum stjórnmálamenn sem ekki leika á pólitískt tilfinningalíf fólks með þessum hætti. Aðdráttarafl þjóðernishyggjunnar og kjörþokki hennar er enn mikill. Einbeiting að eigin verðleikum gerir þjóðir þröngsýnar, sem einangrar og er ávísun á áhrifaleysi. Hugarheimur tilbúinna yfirburða verkar illa á aðrar þjóðir.Íslenska útgáfan Allt frá dögum sjálfstæðisbaráttunnar hefur þjóðernishyggja verið sterk hérlendis. Framan af var hún aflvaki þjóðvakningar og orkugjafi. Á síðustu tímum hefur hún hins vegar þróast yfir í ágenga þjóðrembu sem byrgt hefur sýn. Í stað hófsemi kom oflæti. Úr hógværð varð hroki. Við lentum í gjörningaveðri þjóðernisskrumsins. Hér voru kveiktir eldar þjóðlegra afburða og arfborins ágætis. Því miður lifir enn í þeim glæðum. Íslenskir stjórnmálamenn ólu og ala enn á sérstæði og yfirburðum þjóðarinnar, þótt minnimáttarkenndin blasi við í áráttu okkar við að þykjast alls staðar vera „á heimsvísu“. Oflæti, hroki og ofmetnaður urðu þjóðarlestir sem alræmdir voru í útlöndum. Við urðum, eins og Danir 1864, blindir á getu okkar, veikleika og vanmátt. Enn þykjumst við fullfærir einir, enda er pólitískur einstæðingsskapur okkar áberandi. Í þessu andrúmslofti oflætis og ruglaðrar dómgreindar gerðu íslenskir útrásarvíkingar strandhögg, rændu fjárhirslur evrópskra banka, stofnana og sparnaði einstaklinga. Árásir á fjármálakerfi eru nútíma stríð. Hér fór þetta svipað og hjá Dönum 1864. Sjálfsmörkin urðu dýrkeyptust. Litlar þjóðir geta vissulega valdið miklum usla ef brotaviljinn er einbeittur eða sem síst er betra, ef hyggjuleysið er algjört. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 18.05.2024 Halldór Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth Skoðun Skoðun Skoðun Til áréttingar Jón Þór Stefánsson skrifar Skoðun Kynhluthlaust mál, máltilfinning og forsetaframboð Höskuldur Þráinsson skrifar Skoðun Er klassískt frjálslyndi orðið að jaðarskoðun? Kári Allansson skrifar Skoðun Forseti Íslands veifaði mér Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Ákall til framtíðar: Nám í félagsráðgjöf! Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Lexía lærð á hálfum degi Stefanía Arnardóttir skrifar Skoðun Ég kýs Helgu Þórisdóttur Gerður Rún Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar Skoðun Formaður húsfélagsins Guðmundur Andri Thorsson skrifar Skoðun Opið bréf til landsliðsmanna Íslands í blaki Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Kosningum frestað Ása Berglind Hjálmarsdóttir,Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Mesti stjórnmálamaðurinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Birni Bjarnasyni svarað Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Baldur Þórhallsson er vitur og vís Bryndís Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Kjósum Katrínu Kjartan Ragnarsson skrifar Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar Skoðun Nýtt sveitarfélag Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld Stella Samúelsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Varfærnisleg fagnaðarlæti Berglind Sunna Bragadóttir skrifar Skoðun „Ég skal baka fyrir Gunnar en ég kýs Kristján“ Páll Magnússon skrifar Skoðun Daðrað við sölu Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Rannsóknir á söfnum skapa dýrmæta þekkingu Arndís Bergsdóttr skrifar Skoðun Sagan sem verður að segja Drífa Snædal skrifar Skoðun Nýsköpun innviða Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi fyrirtækja hætta með Rapyd Oddný Björg Rafnsdóttir skrifar Skoðun Forsetaframbjóðendur undir áhrifum Kremlverja? Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Bréf frá móður Berglind Fríða Viggósdóttir skrifar Skoðun Vill ekki lengur íslenzkan her? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Yfirborðskenndur stríðsáróður og McCarthýismi hjá háskólaprófessor Tjörvi Schiöth skrifar
Skoðun Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Því miður ekkert annað í stöðunni en að fresta atkvæðagreiðslu um verkefni Heidelberg Gestur Þór Kristjánsson,Erla Sif Markúsdóttir,Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir,Grétar Ingi Erlendsson skrifar
Skoðun Neikvæð áhrif þess að útiloka forsetaframbjóðendur frá kappræðum strax komin í ljós Ástþór Magnússon skrifar
Ef þú kýst Höllu Tómasdóttur eða Jón Gnarr gætirðu verið að kjósa Katrínu! Ole Anton Bieltvedt Skoðun