Angelina fékk Atelier Versace, merki sem hún er mjög hrifin af, til að hanna kjólinn og var yfirhönnuður merkisins, Donatella Versace, auðvitað með puttana í verkefninu.
„Angelina hefur þetta allt. Fegurð, stíl og gáfur. Ég óska henni og hennar yndislegu fjölskyldu alls hins besta,“ segir Donatella í samtali við tímaritið Us Weekly.
Brúðarkjóllinn var að sjálfsögðu sérsaumaður fyrir Angelinu úr silkisatín en teikningu af kjólnum má sjá hér fyrir neðan. Þá var Angelina í hvítum hælum frá Versace við hann.

