Óttast að hryðjuverkamenn noti ebólu sem vopn Aðalsteinn Kjartansson skrifar 22. október 2014 13:02 Engar vísbendingar eru um að liðsmenn Íslamska ríkisins séu að reyna að gera ebólu að vopni.
Mikill ótti er meðal nokkurra þingmanna Repúblikana á bandaríska þinginu vegna útbreiðslu ebólu. Tveir þingmenn flokksins, Mike Kelly og Joe Wilson, hafa lýst þessum ótta sínum í ræðum og viðtölum þar sem þeir velta upp þeim möguleika að veiran verði notuð í hryðjuverkaárás á Bandaríkin. Wilson, sem er þingmaður fyrir Suður-Karólínu í fulltrúadeild þingsins, sagði á fimmtudag í umræðum á opnum fundi að hann óttaðist að liðsmenn Hamas, sem eru palestínsk samtök, kæmu til Bandaríkjanna með ebólusmitaðan einstakling til að dreifa veirunni. Sagði hann einu leiðina til að verjast því vera að loka landsmærunum. Í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina NewsMaxTV talaði Kelly, þingmaður Pennsylvaníu á þinginu, hinsvegar um ógnina sem stafaði af því að Íslamistar kæmu til landsins smitaðir af veirunni. „Ég vil að fólk hugsi um þetta. Það eru bandarískir ríkisborgarar sem hafa farið úr landi og til annarra hluta heimsins til að læra að gera hræðilega hluti,“ sagði hann. Engar vísbendingar eru þó um að hryðjuverkahópar séu að reyna að gera ebólu að vopni. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, lýsti því yfir á fimmtudag að það væri engin hætta talin á því að meðlimir Íslamska ríkisins myndu reyna slíkt. Sama hefur varnarmálastofnun Bandaríkjanna sagt. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur einnig útilokað að landamærunum verði lokað til að bregðast við útbreiðslu ebólu. „Við getum ekki bara lokað á Vestur-Afríku,“ sagði Obama í vikulegu ávarpi í síðustu viku. Varaði hann líka landa sína að láta espa upp í sér hræðslu vegna veirunnar.
Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Sjá meira